Tímarit lögfræðinga - 01.11.1975, Qupperneq 13
talsvert mismunandi. Þannig er hann í samningi Dagsbrúnar ein vika
fyrir þá, sem öðlast hafa rétt til fasts vikukaups, þ.e. þeir, sem hafa
unnið hjá sama vinnuveitanda 6 mánuði eða lengur. Ef Dagsbrúnar-
maðurinn hefir unnið hjá sama vinnuveitanda eitt ár eða lengur, sbr.
1. nr. 16/1958, gildir uppsagnarfresturinn samkvæmt lögunum, þ.e.
einn mánuður. Mánaðarkaupsmenn eiga ávallt eins mánaðar upp-
sagnarfrest. Uppsagnarfresturinn er einn mánuður fyrir mánaðar-
kaupsmenn hjá heildsölum og olíufélögum. Þessi ákvæði Dagsbrún-
arsamningsins eiga sér hliðstæður í öðrum samningum, svo sem Hinn
almenni kj arasamningur verkalýðsfélaga og vinnuveitenda á Norður-
iandi. I kjarasamningi Starfsstúlknafélagsins Sóknar er l]/2 mánaðar
uppsagnarfrestur. 1 samningi Verslunarmannafélags Reykjavíkur er
uppsagnarfresturinn 3 mánuðir. 1 Iðj usamningum er uppsagnarfrest-
urinn dálítið mismunandi: Ein vika fyrir vikukaupsfólk, en tvær vik-
ur fyrir mánaðarkaupsfólk. Fyrir þá, sem hafa unnið hjá sama fyrir-
tæki eitt ár eða lengur, skal uppsagnarfresturinn vera 2 mánuðir.
Framreiðslumenn eiga 14 daga uppsagnarfrest, ef þeir hafa unnið
skemur en eitt ár á sama stað, einn mánuð, ef unnið hefir verið leng-
ur en eitt ár, en skemur en 3 ár, og tvo mánuði, ef unnið hefir verið
lengur en 3 ár.
í samningi Hins íslenska prentarafélags er ákveðið, að uppsagnar-
frestur skuli vera ein vika. Bókbindarar hafa sama uppsagnarfrest-
inn.
Félag starfsfólks í veitingahúsum hefir eins mánaðar uppsagnar-
frest, hafi það unnið hjá sama vinnuveitanda eitt ár eða lengur, en
skemur en hálfan mánuð. Fyrsta mánuðinn, sem er reynslutimi, er
uppsagnarfresturinn enginn.
Hjá starfsmönnum við Álverið í Straumsvík er uppsagnarfrestur-
inn stystur einn mánuður á reynsltímanum, sem er 3 mánuðir, en
næstu 9 mánuði er hann V/2 mánuður, og úr því eða eftir eins árs
starf þrír mánuðir. í samningum sjómanna er ekki minnst á uppsagn-
arfrest, enda geyma sjómannalögin rækilegar reglur um uppságnar-
frestinn, eins og áður segir.
Starfsmenn sveitarfélaga, sem ekki þiggja laun samkvæmt kjara-
samningum verkalýðsfélaga, hafa 3 mánaða uppsagnarfrest. Meðan
læknar í þjónustu ríkissjúkrahúsanna stóðu utan kjarasamninga
B.S.R.B. og ríkisins á árunum 1966 til 1973, höfðu þeir tveggja mán-
aða uppsagnarfrest.
Það ríkja þannig mismunandi regiur um lengd uppsagnarfrestsins
bæði þar, sem löggjafinn hefir látið þessi mál til sín taka eða frá
107