Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1975, Qupperneq 24

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1975, Qupperneq 24
II. Fulltrúaráðin Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna eru svæðasambönd verkalýðsfélaga innan ASl, er hafa aðsetur á sama stað eða jafnvel innan sömu sýslu. Fulltrúaráð hafa verið starfandi í Reykjavík, Hafnarfirði, Akureyri, Akranesi, Árnessýslu og ef til vill víðar. Hlutverk fulltrúaráða hefur verið að fara með hin sameiginlegu mál verkalýðsfélaganna, er aðild eiga að ráðinu. Einkum hefur þar verið um að ræða atvinnumál, fræðslumál og hátíðahöld 1. maí. Á síðari árum hefur fulltrúaráðunum hnignað, meðal annars vegna tilkomu landssambandanna. Fulltrúaráðið í Reykjavík rak lengi skrifstofu fyrir smærri félögin í höfuðborginni, en þeirri starfsemi er nú hætt. Landsfélögin, þ. e. félög er hafa allt landið að félagssvæði, eiga aðild að fulltrúaráðinu í Reykjavík. Nú er svo komið, að í raun er það lítið annað en hátíðahöldin 1. maí, sem fulltrúaráðin hafa afskipti af. III. Fjórðungssamböndin Hin svonefndu fjórðungssambönd eru fjögur, eins og lög gera ráð fyrir, þ. e. Alþýðusamband Vestfjarða, Alþýðusamband Norðurlands, Alþýðusamband Austurlands og Alþýðusamband Suðurlands. Þó eru það aðeins tvö þessara sambanda, sem taka yfir heilan landsfjórðung, en það eru Alþýðusamband Norðurlands og Alþýðusamband Austur- lands. Alþýðusamband Suðurlands nær í reynd aðeins til Árnessýslu og Alþýðusamband Vestfjarða nær ekki til Vesturlands. Fjórðungssam- böndin eru svæðasambönd allra verkalýðsfélaga innan ASl í viðkom- andi landsfjórðungi eða á viðkomandi sambandssvæði. Utan sambands- svæðanna eru meðal annars Reykjavík, Reykjanes og Vesturland. Hlut- verk fjórðungssambandanna er fyrst og fremst að sinna sameiginleg- um sérmálum verkalýðsfélaganna á sambandssvæðunum, m. a. með er- indrekstri og sameiginlegu skrifstofuhaldi fyrir félögin. í reynd hefur starfsemi fjórðungssambandanna orðið ærið misjöfn. Litið hefur kveð- ið að Alþýðusambandi Suðurlands. Hin þrjú fjórðungssamböndin hafa hins vegar rekið skrifstofur og haldið uppi reglubundinni starfsemi og jafnvel farið með samningsumboð fyrir félögin við kjarasamninga- gerð. Einkum á þetta þó við um Alþýðusamband Vestfjarða, sem hefur haldið mjög fast á samningsumboði fyrir félögin á Vestfjörðum, þótt félög í öðrum landshlutum hafi á sama tíma haft sameiginlega samn- inganefnd starfandi í Reykjavík. Fjórðuiígssamböndin lialda þing annað hvort ár, þar sem stjórn þeirra er kjörin. 118

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.