Tímarit lögfræðinga - 01.11.1975, Side 36
þessum var kallaður „dómur í ávana- og fíkniefnamálum". Með lögum nr.
66/1974 var ákveðið, að dómstóllinn skyldi nefnast „sakadómur í ávana- og
fikniefnamálum". Ásgeir Friðjónsson aðalfulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík
var settur í dómaraembætti þetta 25. maí 1973 og skipaður 10. desember 1973.
Hann var eini umsækjandinn.
SýslumaSur í Dalasýslu. Yngvi Ólafsson fékk lausn 13. mars 1974 frá 15.
maí. Við embættinu tók þann dag Pétur Þorsteinsson, sem skipaður hafði
verið 7. s. m. Hann var áður fulltrúi bæjarfógetans í Hafnarfirði. Aðrir um-
sækjendur voru Eggert Óskarsson, Guðlaugur M. Einarsson, Þorfinnur Egils-
son og Þorkell Gíslason.
SýslumaSur í Þingeyjarsýslu. Jóhann Skaptason fékk lausn 10. maí 1974
frá 1. júlí. SigurSur Gizurarson hrl. var skipaður í embættið 27. júní frá 1. júlí.
Aðrir umsækjendur voru Andrés Valdimarsson, Björn Friðfinnsson, Friðgeir
Björnsson, Guðmundur L. Jóhannesson, Sigurður Hallur Stefánsson og Sveinn
H. Valdimarsson.
Vararíkissaksóknari. Með lögum nr. 61/1974 var ákveðið, að saksóknari
ríkisins skyldi fá embættisheitið rikissaksóknari og að stofnað skyldi embætti
vararíkissaksóknara, sbr. nú lög nr. 74/1974 um meðferð opinberra mála.
Hallvarður Einvarðsson, aðalfulltrúi saksóknara ríkisins, var skipaður vara-
ríkissaksóknari 22. júlí 1974 frá 15. júlí að telja. Hann var eini umsækjandinn.
Bæiarfógeti í Bolungarvík. Gísli G. ísleifsson fékk lausn frá embætti 3. júlí
1974 frá 1. s. m. Barði Þórhallsson var skipaður í embættið 22. ágúst frá þeim
degi. Barði hafði verið settur til að gegoa embættinu frá 16. september 1973,
en hann var áður fulltrúi bæjarfógetans í Kópavogi. í lögum nr. 17/1974 um
kaupstaðarréttindi til handa Bolungarvíkurhreppi segir, að lögregiustjórinn í
hreppnum verði bæjarfógeti í kaupstaðnum. Lögin voru staðfest 10. apríl 1974
og tóku þegar gildi.
Borgarfógetar við borgarfógetaembættið í Reykjavík. Ólafur Pálsson fékk
lausn frá borgarfógetaembætti 10. janúar 1975 frá 1. apríl. Sigurður Sveins-
son, fulltrúi yfirborgarfógeta, var skipaður í embættið 3. apríl frá 1. apríl 1975.
Auk hans sótti Barði Þórhallsson um embættið.
Halldór S. Rafnar fékk lausn frá borgarfógetaembætti 16. janúar 1975 frá
I. mars. Embætti þetta hefur ekki verið auglýst laust til umsóknar.
Sýslumaður í Snæfellsness- og Hnappadalssýslu. Friðjón Þórðarson fékk
lausn 18. júní 1975 frá 1. september. Andrés Valdimarsson sýslumaður í
Strandasýslu var skipaður í embættið 23. júlí frá 1. september. Aðrir um-
sækjendur voru Barði Þórhallsson, Böðvar Bragason, Hreinn Sveinsson, Ingvar
Björnsson, Rúnar Guðjónsson og Þorkell Gíslason.
Sýslumaður í Gullbringusýslu og bæjarfógeti í Keflavík og Grindavík. Alfreð
Gíslason fékk lausn frá embætti 8. júlí 1975 frá 1. október að telja. Með lögum
nr. 18/1974 hafði Grindavíkurhreppur íengið kaupstaðarréttindi, og jafnframt
hafði verið ákveðið, að sýslumaður Gullbringusýslu og bæjarfógeti Keflavíkur
skyldi jafnframt vera bæjarfógeti hins nýja kaupstaðar. Jón Eysteinsson hér-
aðsdómari var skipaður í embættið 22. ágúst frá 1. október. Aðrir umsækj-
endur voru: Elías I. Elíasson, Erlendur Björnsson, Halldór Þ. Jónsson, Hall-
varður Einvarðsson, Jón A. Ólafsson, Jón Thors, Jónatan Þórmundsson, Kjart-
an Ragnars, Már Pétursson, Steingrímur Gautur Kristjánsson og Sverrir
Einarsson.
130