Tímarit lögfræðinga - 01.11.1976, Side 9
gr. vl. þá skýrð svo, að stéttarfélag utan Alþýðusambands Islands ætti
ekki rétt á því að nefna dómara, þegar það er aðili máls, Fd. I. 5. Hef-
ur þeirri reglu verið fylgt æ síðan og ekki aftur komið til ágreinings út
af þessu atriði. Þessi skipan hefur reynst heppileg í framkvæmd, en
hefur verið gagnrýnd á þeim grundvelli, að aðiljar máls búi ekki við
jafnfræði að þessu leyti.
Þegar Félagsdómur dæmir í málum, sem lögð eru undir dómsvald
hans samkvæmt lögum nr. 70/1954 og lýst verður nánar síðar, víkja
dómendur þeir, sem skipaðir eru af Alþýðusambandi Islands og Vinnu-
veitendasambandi íslands, en í stað þeirra nefna aðiljar máls hvor
sinn dómara úr hópi 18 manna, sem tilnefndir eru í því skyni af Lands-
sambandi iðnaðarmanna, Iðnsveinaráði Alþýðusambands Islands og
Félagi íslenskra iðnrekenda. Nefnir hvert þessara samtaka 6 menn til
dómaravals og jafnmarga til vara. Nefni aðili máls ekki dómara af
sinni hálfu í þessum málum skipar forseti Félagsdóms einhvern úr þess-
um 18 manna hópi til dómsetu.
Með lögum nr. 55/1962 um kjarasamninga opinberra starfsmanna
voru mál út af þeim kjarasamningum lögð undir Félagsdóm. Þegar
slík mál eru rekin fyrir Félagsdómi víkja þeir dómendur, sem nefndir
eru af Alþýðusambandinu og Vinnuveitendasambandinu, sæti, en í
þeirra stað koma samkvæmt 25. gr. sömu laga, nú 26. gr. laga nr.
46/1973, dómendur nefndir af fjármálaráðherra og þeim heildarsam-
tökum starfsmanna ríkisins, sem hlotið hafa viðurkenningu fjármála-
ráðherra, sbr. 1. mgr. 3. gr. síðast nefndra laga. Sjá nú og lög nr.
29/1976 um kjarasamninga Bandalags starfsmanna ríkis og bæja.
Dómendur í Félagsdómi eru skipaðir til þriggja ára í senn, nema
þeir, sem nefndir eru til dómstarfa af aðiljum í einstökum málum. Fé-
lagsmálaráðherra sér um að skipun í dóminn fari fram og tilkynnir
þeim aðiljum, er eiga að skipa dómara, hvenær það skuli gert. Láti að-
ili undir höfuð leggjast að nefna dómara innan þess tíma, sem ráðherra
tiltekur, skal félagsmálaráðherra skipa dómara af hans hálfu, sbr. 40.
gr. vl.
Það er borgaraleg skylda að taka skipun sem dómari í Félagsdómi
41. gr. vl.
Dómaraskilyrði.
Dómarar skulu vera íslenskir ríkisborgarar, fjár síns ráðandi og
hafa óflekkað mannorð. Annarra skilyrða er ekki krafist, að því und-
anskildu, að þeir dómarar, sem Hæstiréttur skipar beint skulu hafa lok-
ið embættisprófi í lögfræði.
103