Tímarit lögfræðinga - 01.11.1976, Blaðsíða 10
Um hæfni dómara til að dæma í einstökum málum hefur verið beitt
reglum réttarfarslaga að því er snertir þá dómara, sem nefndir eru af
Hæstarétti og félagsmálaráðherra. Hinsvegar hefur ekki verið farið
strangt í sakirnar að því er varðar þá dómara, sem tilnefndir eru af að-
iljum vinnumarkaðarins. Þannig hefur forseti stéttarfélagasambands
dæmt í máli þess sama sambands, Fd. I. 130, og starfsmaður laun-
þegasamtaka hefur dæmt í máli þeirra sömu samtaka Fd. VI. 119.
Þetta er óheppileg regla. Það er að vísu einkenni dómstóla í vinnu-
markaðsmálum, að höfuðaðiljar vinnumarkaðarins hafi íhlutun um val
dómara. En hafa ber í huga, að sá maður, sem valinn er til að sitja í
dómarasæti, er ekki þangað kominn til málflutnings, heldur vegna
þekkingar á þeim málum, sem fyrir dóminn koma. Málflutningur á að
fara fram fyrir dóminum en ekki innan hans, eins og hætt er við að
verði, ef aðili máls eða beinn umbjóðandi hans situr í dómi. Rétt væri
að sett yrðu skýr og ákveðin fyrirmæli um hæfi dómara í einstökum
málum, sem fyrir Félagsdóm koma.
Samkvæmt 48. gr. vl. skulu dómarar, sem eru almennt skipaðir til
þriggja ára í senn, dæma þau mál, sem höfðuð hafa verið fyrir dóm-
inum á skipunartímabili þeirra, þótt það endi áður en meðferð ein-
staks máls lýkur. Er þessi regla væntanlega sett til þess að ekki þurfi
að verða dráttur á málsmeðferð vegna dómaraskipta. I framkvæmd
hefur þeirri reglu hinsvegar að jafnaði verið fylgt, að dómari taki
ekki þátt í meðferð máls eftir að skipunartímabili hans er lokið, og
hann hefur ekki verið nefndur í dóminn á ný. Hitt er þó til að dómari
haldi áfram dómstörfum samkvæmt ákvæði 48. gr. vl. sbr. Fd. II. 107,
115, 119 og 122.
Verkefni Félagsdóms.
í 44. gr. vl. eru verkefni Félagsdóms talin upp og eru þau þessi:
1. Að dæma í málum út af brotum á lögum nr. 80/1938 og tjóni,
sem hlotist hefur af ólögmætum vinnustöðvunum.
Höfuðeinkenni þessa málaflokks eru brot á II. kafla vl. um vinnu-
stöðvanir eða þá ágreiningur um það, hvort fyrirmælum þessa kafla
vl. hafi verið fylgt við ákvarðanatöku um að hefja vinnustöðvun, sbr.
15. gr., hvort verkfall hafi verið tilkynnt með lögmætum fyrirvara
og allrar tilkynningarskyldu í sambandi við boðun verkfalls gætt. Sé
vinnustöðvun, hvort heldur af forms eða efnisástæðum, ólögmæt, dæm-
ir Félagsdómur einnig um bótakröfur, sem út af slíkum athöfnum
rísa, sbr. 65. gr. vl.
Undir dómsvald Félagsdóms falla einnig mál út af brotum á 2. gr.
104