Tímarit lögfræðinga - 01.11.1976, Qupperneq 19
Telja verður, að prófraun samkvæmt 14. gr laga nr. 61/1942 verði
eigi þreytt fyrir Félagsdómi, og hefur tilmælum um það verið vísað á
bug.
Dómar og úrskurðir.
Félagsdómur er eins og aðrir vinnumarkaðsdómstólar einsstigs
dómstóll, og verður dómum hans því eigi skotið til Hæstaréttar. Hins-
vegar má leita dóms Hæstaréttar um það, hvort mál heyri undir úr-
lausn Félagsdóms. Slíkt málsskot getur orðið með þessum hætti:
1. Að kærður sé úrskurður Félagsdóms um að máli skuli ekki vísað frá
dómi.
2. Að kærður sé dómur Félagsdóms, sem kveður á um vísun frá dómi.
3. Að efnisdómi Félagsdóms sé skotið til Hæstaréttar vegna þess að
mál hafi ranglega verið dæmt í Félagsdómi.
4. Þá má skjóta til Hæstaréttar úrskurði Félagsdóms um skyldu til
að bera vitni, um eiðvinningu og sektir.
Það hefur öðru hvoru komið fyrir, að úrskurðum og dómum sam-
kvæmt 1. og 2. lið hafi verið skotið til Hæstaréttar. Einu sinni hefur
úrskurði um skyldu og heimild til að skýra frá því fyrir dómi, hvað
fram hefði farið á fundum hjá sáttasemjara, verið skotið til Hæsta-
réttar, Fd. II. 107, Hrd. XV. 345. Aftur á móti hefur það aldrei komið
fyrir, að efnisdómi hafi verið skotið til Hæstaréttar af þeirri ástæðu að
mál hefði ranglega verið tekið til meðferðar og dæmt í Félagsdómi,
enda er hér naumast um raunhæft atriði að ræða. Hefðu aðiljar
máls flutt það fyrir Félagsdómi án kröfu um frávísun, en kæmu svo
eftir dómsuppsögu og krefðust ógildingar, mætti væntanléga líta svo
á, að þeir hefðu í reynd samþykkt málsmeðferð samkvæmt 3. lið 44.
gr. vl.
Málsskot til Hæstaréttar á úrskurðum og dómum Félagsdóms fer
eftir reglum um meðferð kærumála. Kærufrestur í þessum málum er
þó ekki nema ein vika samkvæmt 67. gr. vl., og hafa yngri lög eigi hagg-
að því ,sbr. Hrd. XLIV. 837.
Dómar Félagsdóms eru aðfararhæfir og ákveður dómurinn aðfarar-
frest.
Félagsdómur gefur út dóma sína á 5 ára fresti. Eru þegar komin út
6 bindi, en það VII. er í prentun.
Fd. — Dómur Félagsdóms.
Hrd. — Hæstaréttardómur.
113