Tímarit lögfræðinga - 01.11.1976, Side 33
samningum kennarafélaganna voru þau, a3 lækkaður var fjöldi menntunar
stiga, sem þarf fyrir hvern launaflokk. Þá var yfirvinnustuðull hækkaður úr
1.2 í 1.3.
Félag íslenskra fræða fékk heimildarákvæði fyrir launuðu rannsóknarleyfi
til framhaldsnáms erlendis, sem svarar til allt að 3 mánaða á 6 ára fresti.
Læknafélag íslands samdi um eins launaflokks hækkun fyrir yfirlækna og
forstöðumenn (A-25 í A-26), og gildir það frá 1. júlí 1976.
Prestafélag íslands samdi um hækkun um einn launaflokk fyrir alla nema
biskup og gildir hækkunin frá 1. júlí 1977. Hækkun fékkst á greiðslum vegna
ýmissa útgjalda við embættisrekstur.
Hinn 14. júlí kvað Kjaradómur upp úrskurð um sérkjarasamninga annarra
félaga innan BHM. Helstu niðurstöður dómsins voru þessar:
1. Öll starfsheiti, nema sjúkraþjálfara, hækka um einn launaflokk 1. jan.
1977.
2. Nokkur starfsheiti fá eins launaflokks hækkun til viðbótar og eitt starfs-
heiti 2. launaflokka hækkun (lektor með doktors eða lic-próf).
3. Nokkur félög, sem ekki höfðu heimildarákvæði um námsleyfi, fá það nú.
Hinn 9. september s.l. krafðist launamálaráð BHM endurskoðunar aðal-
kjarasamnings síns við fjármálaráðherra. Gerð var krafa um 30% hækkun
launa miðað við 1. júlí 1976 til viðbótar þeim hækkunum, sem felast í núgild-
andi aðalkjarasamningi. Krafa þessi var studd eftirfarandi rökum:
1. Laun háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna eru nú 30—60% lægri en laun
sambærilegra stétta á almennum vinnumarkaði.
2. Kaupmáttur launa ríkisstarfsmanna hefur frá því 1. janúar 1974 rýrnað
20—25% meira en launa á almennum vinnumarkaði.
3. Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu um rúm 14% frá 1. janúar
1976 til 1. júlí 1976. Á sama tíma hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um
6—8%.
Samninganefnd ríkisins hafnaði alfarið kröfu launamálaráðs BHM um end-
urskoðun aðalkjarasamnings. Launamálráð BHM ákvað að reka málið ekki
fyrir Kjaradómi, en reyna að knýja fram kjarabætur með öðrum aðferðum.
GuSríður Þorsteinsdóttir.
STARFSEM! SJÁLFSTÆTT STARFAND!
HÁSKÓLAMANNA
Dagana 15. og 16. okt. sl. efndi BHM til ráðstefnu um starfsemi siálfstætt
starfandi háskólamanna, þ.e. þeirra félagsmanna sinna, sem hafa sjálfstæð-
an rekstur með höndum.
I undirbúningsnefnd áttu sæti: Jónas Bjarnason, Hilmar Ólafsson, Andrés
Svanbjörnsson, Ragnar Aðalsteinsson, Guðmundur Hjálmarsson, Hróbjartur
Hróbjartsson, Brynjólfur Kjartansson, Guttormur Sigbjarnarson, Skúli G. John-
sen, Guðríður Þorsteinsdóttir og Magnús Skúlason. Nefndin hélt alls 13
fundi.
Til ráðstefnunnar var boðið fulltrúum ýmissa samtaka oq stofnana, sem
talið var að létu sig þetta málefni varða, ásamt fulltrúum þeirra aðildarfé-
127