Ægir

Volume

Ægir - 01.05.1994, Page 15

Ægir - 01.05.1994, Page 15
hvað varðar grásleppuhrognin. Hráefnið hefur hækkað mjög mikið milli ára þrátt fyr- ir að veruleg verðlækkun hafi orðið á afurð- um á markaðnum. Þannig horfir illa með sölu á afurðunum fullunnum en ágætlega með sölu á óunnu hráefni. Það er þrýstingur í þá átt að við verðum hráefnisframleiðend- ur frekar en seljendur fullbúinnar neytenda- vöru. Það er ekki það sem við viljum," sagði Rafn að lokum. Félag rækju- og hörpudiskframleiðenda Metár í rækjuveiði „Aflabrögð á árinu voru sérlega góð en verðþróun mjög óhagstæð sem leiddi til mikillar birgðasöfnunar. Þetta minnir enn á nauðsyn þess að leggja aukna áherslu á markaðsstarf," sagði Pétur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Félags rækju- og hörpudisk- framleiðenda, í samtali við Ægi. „Þótt rækjumarkaðir séu að stækka vex hlutdeild kaldsjávarrækju ekki." Rækjuafli ársins 1993 varð 51.526 tonn og þetta er mesti rækjuafli íslandssögunnar og varð 19% aukning frá árinu á undan sem einnig var metár en þá veiddust rúmlega 43 þúsund tonn. Þessi mikli afli hélst í hendur við að verðmæti rækjuafurða jukust gífur- lega milli ára eða um 25% og eru rækjuaf- urðir nú, að niðursoðinni rækju meðtalinni, um 12,4% af heildarverðmæti sjávarafurða. Kvótastaðan er áfram mjög góð því á yfir- standandi ári er leyft að veiða 63 þúsund tonn svo flest stefnir í að núverandi met verði senn slegið. Samtals voru flutt út 23.731 tonn af rækjuafurðum sem er 3456 tonnum meira en árið áður og heildarverðmæti þessa var 9591 milljónir króna. Mjög lágt verð er á rækjuafurðum. í nóv- ember 1993 var það orðið 8% lægra en það hafði nokkru sinni verið áður og hefur alls lækkað um 50% frá því það var hæst árið 1986. Rækjuiðnaðurinn var rekinn með 3% halla árið 1992 svo búast má við að enn hafi sigið á ógæfuhliðina árið 1993. Ein helsta ástæða lækkandi rækjuverðs er talin vaxandi eldi rækju og annars fiskmetis sem keppir við rækju á markaðnum. Stærsta einstaka verkefni Félags rækju- og hörpu- diskframleiðenda á síðasta ári og þessu hefur verið undirbúningur fyrir sameiginlegt markaðsátak framleiðenda og söluaðila á Norðurlöndum. Átakið hefur það markmið að auka markað fyrir kaldsjávarrækju og beina menn einkum sjónum sínum að þýskumælandi hluta Evrópu. Veruleg aukning varb í útflutningi á hörpudiski milli ára en 1993 voru flutt út 1817 tonn á móti 1157 tonnum árib ábur. Meginástæða þessarar miklu aukningar var mikil sölutregða og birgðasöfnun sem varð á árinu 1992. Heildarafli hörpudisks á árinu 1993 var 10.901 tonn sem er nokkru minna en árið áður þegar veiddust 12.594 tonn. Sé litið á veröþróun á hörpudiskafurðum milli ára kemur í ljós að í upphafi árs var verðið með því lægsta sem lengi hefur sést en fór hækkandi eftir mitt ár og var í árslok orðið jafnhátt og í ársbyrjun 1991. Heildarverðmæti útfluttra hörpudiskafurða var 913,2 milljónir króna á móti 598,4 milljónum árið 1992. A IIII f*WIP RÁFMÓT0RAR SEM SNÚASTOG SNÚAST Mótorar fyrir allar þarfir, 0,18-900 kW. Nýr Evrópustaðall M2BA. HRADA • STYRINGAR FYRIR DÆLUR, FÆRIBÖND O.FL. Veldu ABB SAMI-GS hraðastýring fyrir mótorstærðir 0,37 - 315 kW. • JOHAN RÖNNING HF SUNDABORG 15 104 REYKJAVÍK SÍMI: 91-684000 FAX: 91-688221 ÞIÓNUSTA í 60 ÁR ÆGIR MAÍ1994 15

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.