Ægir - 01.05.1994, Side 32
Hagnýting fískaflans
Útflutningur í gámum auk aukningar sjóvinnslu ein-
kenndu síðasta áratug. Fram í byrjun þessa áratugs var út-
flutningur ísfisks í gámum vaxandi en hefur verið minnk-
andi síðan. Hámarki náði þessi tegund ráðstöfunar aflans
árið 1990 þegar hún nam 92.155 tonnum. Útflutningur-
inn í gámum var svo 66.810 tonn árið 1991 en 58.261
árið 1992. Á síðasta ári hélt sama þróun áfram og nam
úflutningurinn þá 52.151 tonni. Telja má líklegt að sam-
dráttur þessarar tegundar ísfisksölu sé vegna tilkomu
innlendra fiskmarkaða.
Enn hefur orðið aukning í sjóvinnslu aflans milli ára.
Á árinu 1993 voru sjófryst 147.446 tonn (sé ekki tekið til-
lit til veiða á fjarlægum miðum en þar voru sjófryst yfir
10 þúsund tonn eins og fram kemur í öðrum kafla hér á
eftir). Til samanburðar má nefna að aflinn var 136.309
lestir árið 1992 en 134.173 lestir 1991.
Árið 1991 var botnfiskafli til sjóvinnslu 119.540 tonn
eða um 18% af heildarbotnfiskafla ársins. Ári síðar var
hlutur sjófrystingar í heildarbotnfiskvinnslu um 21% eða
122.020 lestir. Árið 1993 er þetta hlutfall komið í 22,6%
sem eru 131.587 lestir. í þessu sambandi er rétt að athuga
að vaxandi hluti botnfiskaflans kemur úr fiskstofnum
sem hafa lítt verið nýttir áður. Þannig er til dæmis nánast
allur afli úthafskarfa sjófrystur. Meira en helmingur grá-
lúðuaflans er sjófrystur og um 40% rækjunnar. Reyndar
fer hlutfallslega meira nú af rækju til landfrystingar en
áður, enda hefur veiði á rækju margfaldast á síðustu
árum.
Hlutur sjófrystingar í afla er eins og að framan greinir
sívaxandi. Þó hefur ekki dregiö úr hlut landfrystingar í
botnfiskaflanum. Árið 1993 fóru 251.852 tonn botnfisks
til frystingar í landi eða 44% alls botnfiskafla ársins. Þetta
hlutfall var 43,2% árið 1992 en 43,9% árið 1991. Sjó-
vinnslan og landfrystingin eiga það sameiginlegt að
vinna úr öllum fisktegundum, en hlutföll tegundanna
Útflutningur í gámum
Botnfiskafli
Þúsundir tonna
Fiskifélag íslands
Sjófrysting
Þúsundirtonna
□ Botnfiskur □ Rækja □ Annað
Fiskifélag íslands
eru mismunandi. T.d. er nær allur afli úthafskarfa sjó-
frystur eins og áður sagði og hlutdeild sjóvinnslunnar í
karfa, grálúðu og rækjuafla meiri en svarar til hlutdeildar
hennar í öðrum tegundum.
Söltun fer minnkandi enda samdráttur í afla þeirra teg-
unda sem þyngst vega í söltuninni, þ.e. þorski, ufsa og
síld.
Um aðrar vinnslugreinar vísast til taflna um hagnýt-
ingu aflans á fyrri opnu.
Grásleppa
Veidd grásleppa kemur ekki
fram í töflum hér að framan.
Eftirfarandi tafla sýnir áætlaðan
grásleppuafla síðustu ára í tonn-
um. Tölurnar byggja á upp-
lýsingum um framleiðslu grá-
sleppuhrogna sem umreiknaðar
eru í grásleppu upp úr sjó. Um-
reikningurinn er gerður skv.
reikniaðferð Fiskifélags íslands.
Grásleppuafli 1985-1993 01 Skipting grásleppuafla
(í tonnum)
ársins 1993 eftir
Ár Afli
1985 10.294
1986 7.268
1987 10.294
1988 4.590
1989 6.075
1990 2.925
1991 4.410
1992 5.715
1993 3.318
kjördæmum
' Afli
Reykjanes 291
Vesturland 819
Vestfirðir 217
Norðurland vestra 483
Norðurland eystra 1.381
Austfirðir 127
32 ÆGIR MAÍ 1994