Ægir

Årgang

Ægir - 01.10.1994, Side 23

Ægir - 01.10.1994, Side 23
VALDIMAR JÓNSSON Botnlangaskuröur í undirbúningi við Bjarnarey. Frá vinstri: Siguröur Þ. Árnason skipherra, Siguröur Steinar Ketilsson stýrimaöur og Hannes Finnbogason læknir. Þaö var aldrei siglt í var við Bjarnarey. Viö vorum heppnir meö veöur og þennan tíma sem Oðinn var á miðunum var veður aldrei mjög vont, svona kaldaskítur annað slagið," segir Sigurður. Miðin voru þéttsetin af síldarbátum frá mörgum þjóðum, flest voru þó rússnesk og norsk. Rússnesku bátarnir stund- uðu síldveiðar í reknet og áttu gífurlega langar netatrossur um allt sem þeir voru stundum marga daga aö draga og ollu öörum skipum vandræðum. „Okkur þótti þetta bráðskemmtilegt. Þetta voru lengri og ævintýralegri ferðir en við áttum að venjast. Hefðbundnir túrar í gæslunni voru svona 12-14 dagar svo þetta var ný- næmi fyrir áhöfnina. Við höfðum nóg aö gera við að sigla með viðgerðarmenn fram og til baka og snúast ýmisiegt til aðstoöar skipunum." Einu sinni fóru nokkrir úr áhöfn Óðins í kurteisisheim- sókn í land á Bjarnarey. Nokkrir fóru í kaffi hjá norskum veðurathugunarmönnum sem þar hafa bækistöðvar meðan Snorri Hallgrímsson læknir renndi fyrir silung og fékk ein- hvern afia. Á heimleið úr seinni túrnum var einnig farið í land á Jan Mayen. Kyngdi ælunni og losnaði við sjóveikina Sigurður Þ. Árnason fór á eftirlaun hjá Landhelgisgæsl- unni 1989 eftir meira en 40 ára starf, þar af skipherra í 33 ár, fyrst á Maríu Júlíu 1958 í afleysingum, síðan fastráðinn á Gaut síðar Óðinn 1959. Hann er fæddur og alinn upp á Framnesveginum og sótti snemma í sjóinn í Selsvörina sem var steinsnar undan. „Fyrstu kynni mín af sjómennsku voru aö róa tvær vetr- arvertíöir á opnu skipi frá Stafnesi fyrir fermingu. Ég var sjó- veikur upp á hvern einasta dag. Ég var búinn að reyna allt þangaö til ég náði einu sinni aö kyngja ælunni og hef ekki verið sjóveikur síðan." Ferill hans hefur nær stöðugt tengst veiðieftirliti og gæslu með einum eða öðrum hætti. Hann lauk prófi frá Valdimar Jónsson loftskeytamaöur viö vinnu sína. Tilkynn- ingaskylda allra síldarskipanna á miðunum við Bjarnarey var send frá Óöni meö morsi til lands á hverjum degi. Stýrimannaskólanum vorið 1953 og fór beint út á sjó sem stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni. Fyrstu afskipti Sigurðar af landhelgisgæslu voru þó árið 1947. Þá var hann ráðinn sem vélstjóri á Víking frá Keflavík og stóð til að fara á reknet. Af því varð þó ekki því Víkingur- inn var leigður til Landhelgisgæslunnar. Skipstjóri á Víkingi var Haraldur Kristjánsson en það var síðan Hannes Frið- steinsson sem stýrði honum sem varðskipi. Gæsla í stórum og smáum stíl Við fyrstu útfærslu landheiginnar úr 3 míium í 4 mílur 1952 var Sigurður háseti á Sæbjörgu sem var varðskip. Næst var fært úr 4 mílum í 12 og þá var Sigurður afleysingaskip- herra á Sæbjörgu. Það var fyrsta eiginlega „þorskastríðið". Þegar tekist var um útfærslu landhelginnar úr 12 mílum 50 og síðan í 50 mílur í 200 var Sigurður í fremstu víglínu. „Það var oft mikil spenna í kringum það þegar var verið að skera aftan úr þeim en við lentum aldrei í neinum mannraunum. Síðustu árin sem ég var í þessu beið ég bara eftir að kom- ast á eftirlaun. Ég var orðinn svolítið leiður." Sigurður var ekki alveg á því að setjast í helgan stein þó hann hefði látið af starfi skipherra heldur hefur hann síöan fengist við veiðieftirlit með ýmsum laxveiðiám fyrir land- eigendur sem er nokkurs konar landhelgisgæsla þó í smærri stíl sé en tíðkast í þorskastríðum. Fyrst var hann austur í Kelduhverfi á vegum ísnó og leit eftir öllu norðausturhorn- inu en síöast austur á Vopnafirði við Hofsá. Hiutverkið er fólgið í því að vaka yfir netalögnum í sjó, sem eru landeig- endum mikill þyrnir í augum, og koma í veg fyrir ólöglegar lagnir og tryggja að leyfðar lagnir séu nýttar eftir ströngustu reglum. „Mér þótti þetta skemmtilegt. Maður er alltaf á ferðinni, á stöðugri vakt. Vopnafjörður er með fallegri kauptúnum og ég hef kynnst þarna ósnortinni náttúru og afburða fólki." □ ÆGIR OKTÓBER 1994 23

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.