Ægir

Årgang

Ægir - 01.10.1994, Side 29

Ægir - 01.10.1994, Side 29
Veiðistjórn og byggðaröskun Á undanförnum vik- um hef ég ferðast um landið til að sitja fundi fiskifélagsdeilda. Á þess- um fundum er rætt um sjávarútvegsmálin og ástandið sem er viða að skapast vegna minni afla og breytinga sem verða á byggðarlögum og atvinnulífi þeirra í framhaldi af því. Hæst í umræöunni ber kvóta- kerfið og þá veiðistýr- ingu sem því fylgir. Al- mennt eru menn sam- mála um að hafa beri stjórn á fiskveiðum, en þegar kemur að skipt- ingu kvóta eða öðrum takmörkunum á veiðum verða sjónarmiðin óteij- andi og vill þá hver og einn hugsa mest um sína eigin hagsmuni, en lætur lönd og leið hags- muni heildarinnar. Og hver getur ásakað þessa menn. Kvótinn er kom- inn undir hungurmörk og það er ógjörningur að reka útgerð með þeim kvóta sem nú er úthlutað og fiskvinnsl- an verður að kaupa hrá- efni háu verði, það hrá- efni sem fæst, sem er þó engan veginn nægjan- legt til hagkvæms rekst- urs og virðist því grunn- ur fyrirtækjanna vera brostinn. Þetta ástand býður heim þeirri hættu að menn taki sér neyð- arrétt. Flest smærri fyrir- tæki eru byggð upp sem fölskyldufyrirtæki og þegar menn sjá allt sitt ævistarf hrynja og lífs- grundvöll sinna nán- ustu skolast burt, jafn- vel heilu byggðarlögin eru í hættu, þá er fátt heilagt. Það að víkka út reglur um landað magn eða flokka við borð- stokkinn þannig að ein- ungis komi á land sá fiskur sem bestur er og hentar miðað við þann kvóta sem viðkomandi ÚRFÓRUM FISKIMÁLASTJÓRA hefur er lítilfjörlegt brot að þeirra mati. Þetta hefur svo aftur í för með sér að ailar skýrslur verða rangar og vitnesk- jan um hvað er veitt er tómt rugl. Þannig vita fiskifræðingar ekki hvað fiskimiðin gefa í raun af sér og því verður öll þeirra ráðgjöf röng, því forsendurnar eru rang- ar. Hér eru menn komn- ir í algeran vitahring og má vitna til þátta í sjón- varpinu um Nýfundna- land þar sem samsvar- andi ástand var uppi og ástandið þar nú er eitt- hvað sem enginn vill hér á landi. En víða eru merki vaxtar og nú sýna upp- gjör fyrirtækja í sjávar- útvegi að hagur þeirra batnar. Þetta eru þó að- allega stærri fyrirtæki sem geta í krafti stærðar hagrætt hjá sér og hafa keypt kvóta og eiga möguleika í úthafinu ásamt með vinnslu á hráefni erlendis frá. Það virðist því vera að sú stefna sem rekin hefur verið af stjórnvöldum í áratugi og sjávarútveg- urinn var látinn borga sé nú gjaldþrota. Sá vandi sem viö blasir er að fólki í byggðunum fækki, það missi lífsvið- urværi sitt og flytjist bú- ferlum. En útgerðin og fiskvinnslan verði á æ færri stöðum og verði þá um leið í mun stærri og hagkvæmari eining- um. Þessi búseturöskun er vandi þjóðarinnar allrar og verður að leysa á sameiginlegum vett- vangi þar sem svara verður skýrt hvort eigi að halda öllu landinu í byggð eða búa til nýjar Hornstrandir á íslandi. Hornstrandirnar geta orðið víðfeðm svæði og enginn veit hver verður í næsta byggðarlagi sem lendir á Hornstranda- svæðinu. Eitt er þó ljóst. Núverandi ástand verð- ur ekki til frambúðar og ef ekkert verður gert til að grípa þar inn í verð- ur gríðarlega byggða- röskun og fólksflutning- ar á næstu missirum. Bjami Kr. Grímssson VJnvViúði,rf S|ílVar'><Vesinn Góð vara þarfnast góðra umbúða. Plaskprent hf. SÍMI:91-875600 FAX:91-673812 Kvótaminnkun tvöfalt meiri en talið var Sjávarútvegsráðuneytið hefur haldið því fram að ekkert skip á aflamarki verði fyrir meiri skerð- ingu á kvóta á þessu fiskveiðiári en sem nemur 6,4% þorskígilda. Sam- kvæmt rannsóknum Björns Jóns- sonar hjá LÍÚ er skerðingin tvöfalt meiri að jafnaöi, eða 9,11-12,72% hjá skipum völdum af handahófi. Þessar ólíku niðurstöður ráðuneyt- isins annars vegar og LÍÚ hins veg- ar stafa af því að ráðuneytið reiknar ekki með þann viðbótarkvóta sem skip fengu úr Hagræðingarsjóði og bætir við kvóta úr jöfnunarsjóði á yfirstandandi ár. LÍÚ beitir öðrum aðferðum og telur útreikninga ráðuneytisins ranga og villandi og ekki samboðna því. (Útvegurinn, júlí-ágúst 1994.) ÆGIR OKTÓBER 1994 29

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.