Ægir

Årgang

Ægir - 01.10.1996, Side 13

Ægir - 01.10.1996, Side 13
minnkar um rúma 800 fermetra. Lang- tímamarkmið er svo aukin hagræðing. Fyrir um 10 árum voru 70 starfs- menn hjá Vita- og hafnamál og stofn- unin á þremur stöðum í höfuðborginni. Starfsmenn vom orðnir 40 við samein- ingu og eru nú aftur orðnir 70. Þannig má segja að við séum að byrja upp á nýtt. Ég vil samt ekki lofa því að eftir tíu ár verðum við aftur orðin 40 og tíma- bært að bæta við þriðju stofnuninni." Heildarvelta Siglingastofnunar er í kringum 320 milljónir en gert er ráð fyrir að þar af komi um 100 milljónir inn í sértekjum. „Það hlýtur að vera okkar markmið að gera þjónustu okkar ódýrari en halda henni jafngóðri." Hver sá um hvað? Starfsemi Siglingamálastofnunar og Vita- og hafnamálastofnunar var ná- tengd þar sem báðar stofnanirnar fást við verkefni tengd siglingum, skipaflot- anum og öryggi sjófarenda. Með sam- einingu þeirra verður framkvæmd sam- göngumála á sjó í umsjón einnar stofn- unar. Sameinuð stofnun hefur meira bolmagn til að hafa í þjónustu sinni þá sérhæfðu starfsmenn sem þörf er á hverju sinni og stuðlar að betra upplýs- ingastreymi ásamt bættri nýtingu mannafla og aðstöðu. Siglingamálastofnun ríkisins safn- Hermann Guðjónsson forstjóri Siglingastofhunar segir að stofnunin sé skilgreind sem þjón- ustustofhun á sviði öryggismála. Vita- og hafnarmálastofhun hélt upp á 100 ára afmœli sitt 1978 þegar 100 ár vom liðin frá því að fyrsti vitinn var tekinn í notkun en hann var á Reykjanesi og var kveikt á honum 1. desember 1878. Þetta ergömul samtímamynd afvit- anum, máluð afBjarna Sœmundssyni sem var fyrsti fiskifrceðingur íslands og merkur frumkvöðull. Nýr Bjarni Ólafsson Runólfur Hallfreðsson útgerðarmaður á Akranesi hefur samið um kaup á nýju nótaskipi frá írlandi sem kemur í stað Bjarna Ólafssonar AK. Nýja skipið er væntanlegt til landsins í mars á næsta ári. Nýja skipið er smíðað í Noregi 1978 og heitir Voyager K og hefur undanfarin ár stundað makril- og síldveiðar í nót og flottroll. Það geturflutt 1200 tonn í sjókælitönkum en einnig er 350 rúmmetra frystilest um borð og hægt er að frysta 60 tonn á sólarhring. Skipið getur borið um 2.000 tonn af ókældum afla. Nýleg vél og spilkerfi eru í skipinu og núver- andi aðalvél 5.000 ha. Að sögn Runólfs verður nýr Bjarni aðallega á síld- og loðnuveiðum og mun frysta aflann um borð þegar það hentar. Voyager K er 4.000 rúmmetrar en núverandi Bjami Ólafs- son er 2.200 rúmmetrar svo útgerðin þarf að úrelda um 1.800 rúmmetra aukalega. Gera má ráð fyrir að það kosti útgerðina 100-150 milljónir fyrir utan eiginlegt kaupverð. Ekki hefur verið gengið endanlega frá sölu á Bjarna Ólafs- syni en samningar eru í burðarliðnum. ægir 13

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.