Ægir - 01.10.1996, Page 19
60% af tekjum fyrir hráefni á í erfiðleikum. Og það þarf ekki
að koma á óvart að fiskvinnsluhús með svo háan hráefnis-
kostnað loki. Þetta er augljóslega verkefni fyrirtækjanna
sjálfra að takast á við."
Engar patentlausnir til
„Skerðing á þorskveiðum hefur komið frystingunni í mik-
inn vanda. Menn hafa ekki viljað tapa þeirri verkkunnáttu
sem til er í greininni og hafa þess vegna haldið vinnslunni
gangandi með kaupum á of háu verði og kaupum á rússafiski
og látið aðrar deildir halda uppi tapinu of lengi. Menn hafa
lifað í þeirri trú að þorskurinn myndi braggast aftur," sagði
Einar Svansson, framkvæmdastjóri Fiskiðjusamlags Húsavík-
ur, í samtali við Ægi.
Einar gerði tilraunir með vaktavinnu í frystihúsi Skagfirð-
ings þegar hann var á Sauðárkróki og segir að sú tilraun hafi
leitt í ljós að með slíku fyrirkomulagi væri hægt að reka botn-
fiskvinnslu með hagnaði en meira hráefni hefði skort.
„Það sem þarf að vera fyrir hendi er nægilegt hráefni og
nóg af góðu fólki. Ég er sannfærður um að við eigum eftir að
sjá ný og tæknivædd frystihús eða verksmiðjur rekin með
þessum hætti en til þess þarf 5-10 þúsund manna samfélag
svo það eru ekki nema 4-5 staðir á landinu sem geta beitt
þessum aðferðum."
Einar kvaðst sannfærður um að erfið staða nú mundi knýja
fyrirtækin til að leita bestu og hagkvæmustu lausna en kvaðst
#DAEWOO
LYFTARAR
VERKVER
Smiðjuvegi 4b • 200 Kópavogur • S* 567 6620
V________________________________________________J
ÆGIR 19