Ægir - 01.10.1996, Side 22
Verðum að vernda góða
samkeppnisstöðu
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra leysir frá skjóðunni
Þorsteinn Pálsson hefur gegnt embætti sjávarútvegsráðherra frá
1991. Þessi ár hafa að mörgu leyti verið tími breytinga í íslenskum
sjávarútvegi en atvinnugreinin hefur þurft að laga sig að breyttum að-
stæðum og leitað nýrra leiða. Úthafsveiðar, deilur um landhelgi og
samningaviðræður við aðrar þjóðir um fiskveiðar, þetta ásamt sívak-
andi umræðum um kvótakerfið og aðferðir við stjórnun fiskveiða hefur
verið meðal verkefna Þorsteins á valdatíma hans. Þorsteinn fór með
Ægi yfir helstu mál sem ráðuneytið glímir við um þessar mundir. Fyrst
var rætt um erfiða stöðu fiskvinnslunnar.
Þú sagðir á aðalfundi Samtaka fisk-
vinnslustöðva í haust að sá vandi sem
blasti við fiskvinnslunni væri vandi fyr-
irtækjanna sjálfra. Nú má skilja fréttir af
landsbyggðinni þannig að þessi vandi
muni leiða til stórfelldrar byggðarösk-
unar og atvinnuleysis. Hefur afstaða þín
eitthvað breyst gagnvart þessum vanda?
„Það sem við þurfum að vaka yfir á
hverjum tíma er samkeppnisstaða sjáv-
arútvegsins," sagði Þorsteinn.
„Hún er mælikvarðinn á það hvernig
greinin getur spjarað sig. Samkeppnis-
staðan er nú betri en hún hefur verið
um langan tíma, reyndar með allra
besta móti, og það er afrakstur marg-
þættra aðgerða. Aflahlutdeildarkerfið
hefur verið meginforsenda þess að fyr-
irtækin hafa getað nýtt sér almennar
efnahagsráðstafanir til að tryggja stöðu
sína."
Styrkir heyra sögunni til
„Afkoma sjávarútvegsins í heild er
nokkurn veginn á núlli og mörg fyrir-
tæki í sjávarútvegi eru að gera það mjög
gott, skila viðunandi rekstrarafkomu og
eru í fjárfestingum, vöruþróun og nýrri
markaðsöflun. Það sem bestu fyrirtæk-
in eru að gera eiga aðrir líka að geta
gert."
Eru þá yfirlýsingar fiskvinnslumanna
um slæma stöðu innantómar og líkar
drengnum sem hrópaði: úlfur, úlfur?
„Nei, en hin allra síðustu ár hafa ver-
ið eitt mesta breytingaskeið í íslenskum
sjávarútvegi og það sér ekki fyrir end-
ann á þessum breytingum. Ný verkefni
blasa við og fyrirtækin þurfa í stóraukn-
um mæli að horfa á vöruþróun og
22 ÆGIR