Ægir - 01.10.1996, Blaðsíða 23
markaðsstarf. Þessir þættir munu vega
þyngra í verðmætasköpun á næstu
árum en áður hefur verið.
Við svona örar breytingar fer ekki hjá
því að einhverjir iendi í erfiðleikum.
Það þýðir ekki að við getum sagt að allt
eigi að vera óbreytt. Við eigum þvert á
móti að ýta undir þróunina því hún er
forsenda framfara.
Ég er mjög ákveðið þeirrar skoðunar
að styrkir og styrkjakerfi heyri sögunni
til fyrir löngu."
Smábátar í jafnvægi
Það var hart deilt um ráðstafanir
sjávarútvegsráðuneytis varðandi veiðar
smábáta á síðasta þingi og margir töldu
ráðuneytið á villigötum. Verður fram-
hald á þessum átökum eða eru mál smá-
bátamanna komin í jafnvægi?
„Ég vona að þau séu komin í sæmi-
legt jafnvægi. Þetta hefur verið hitamál
í mörg ár og með einhverjum hætti
varð að höggva á hnútinn. Ég beitti mér
fyrir þeim viðræðum við Landssamband
smábátaeigenda sem leiddu til þeirrar
niðurstöðu sem varð. Ég varð að axla á-
byrgð af henni því ljóst var að aldrei
yrðu allir sáttir. Til þess var málið of
flókið.
Ég held að það hafi komið í ljós að
þau markmið sem sett voru hafa náðst.
Við bættum nokkuð hlut smábáta. Enn
fleiri en áður fóru inn í þorskaflahá-
markskerfi og þó nokkur fjöldi hefur
tekið tilboði um úreldingu svo vandinn
vegna of mikillar sóknar hefur minnk-
að. Það mun skapa meiri frið um þessi
mál því gagnrýni margra byggðist á
vantrú þeirra á að markmiðin næðust."
Nú mega smábátar á aflahámarki að-
eins selja og kaupa kvóta innan síns
kerfis. Væri ekki ástæða til að rýmka
reglur enn frekar og setja sömu reglur
um framsal og sölu kvóta smábáta eins
og gilda um aðra?
„Ég er ekki viss um að menn eigi að
flýta sér of hratt. Ég þykist sjá það fyrir
að frekari þróun á eftir að verða því
smábátasjómenn verða að geta nýtt sér
möguleika til hagræðingar og betri af-
komu eins og aðrir. Við vorum tilbúnir
til að taka á málum smábátamanna
með sérstökum hætti og viðurkenna
þannig sérstöðu þeirra. Útfrá hagsmun-
um greinarinnar og smábátasjómanna
sjálfra er best að ein regla gildi en því
verður ekki breytt á þessu þingi."
Utilokað að vera á móti
hagræðingu
í haust var línutvöföldunin svokall-
aða afnumin. Heyrst hafa raddir um að
þetta ieiði til þess að atvinnulíf af-
skekktra staða sé í uppnámi því nú séu
mjög margir línubátar til sölu. Varð
þetta séð fyrir?
„Menn sáu kannski ekki allt fyrir.
Hitt er ljóst að þetta kerfi fól það í sér
að aðrir útgerðarmenn voru að styrkja
línubátana. Styrkjakerfi í hvaða formi
sem er tel ég óheilbrigt og þessvegna
kom það í sjálfu sér ekkert á óvart að
þessi breyting myndi leiða til aukinnar
hagræðingar. Aukin hagræðing í grein-
inni þýðir að hún stendur betur að vígi
og þeir sem í henni starfa hafa meira
öryggi. Það er útilokað að vera á móti
hagræðingu og það er ekki markmið að
viðhalda óhagkvæmum útgerðarhátt-
um.
Þeir sem gera út og eru á sjó eru
miklu betur til þess fallnir en við stjórn-
málamenn að finna hagkvæmustu leið-
irnar. Þessvegna eiga leikreglurnar að
vera jafnar. Það hefur einnig komið í
ljós að við þessa breytingu lækkar verð á
leigukvóta sem má án efa rekja að hluta
til afnáms línutvöföldunar sem þrýsti
upp verði á leigukvóta. Á heildina litið
hafði þetta jákvæð áhrif á þann markað
og var full þörf á."
Má veðsetja kvótann?
Á síðasta ári var lagt fram frumvarp í
þinginu sem meðal annars fól í sér
ákvæði sem heimilar veðsetningu á afla-
heimildum. Frumvarpið komst ekki í
gegnum þingið í fyrra og einn af odd-
vitum framsóknar hefur þegar lýst því
yfir að slíkt ákvæði verði aldrei
samþykkt.Verður frumvarpið lagt fram
óbreytt aftur?
„Þess ber að geta að þetta frumvarp
er ekki á vegum sjávarútvegsráðuneytis
heldur er það dómsmálaráðherra sem
flytur það. Þetta er heildstæð löggjöf
um veðsetningar. Veðlögin eru að stofni
Afkoma sjávarútvegsins í
heild er nokkurn veginn á
núlli og mörg fyrirtœki í
sjávarútvegi eru að gera
það mjöggott, skila við-
unandi rekstrarafkomu og
eru í fjárfestingum, vöru-
þróun og nýrri markaðs-
öflun. Það sem bestu
fyrirtækin eru að gera eiga
aðrir líka að geta gert.
til frá síðustu öld en síðan bætast við
brotakennd ákvæði um heimildir ým-
issa atvinnugreina sem fela í sér mis-
munun sem brýnt er að leiðrétta. Þessi
nýja löggjöf á að tryggja jafnræði með
atvinnugreinum og færa þessi mál til
nútímahorfs. Það var mjög eðlilegt að
frumvarpið fæli í sér heimild til veð-
setningar aflaheimilda líkt og skipa.
Þetta frumvarp er nú til umfjöllunar í
ríkisstjórn og hefur ekki enn verið lagt
fyrir þingflokkana en það er stefnt að
því að svo verði.
Það er mikilvægt að átta sig á að hér
eru engar nýjungar á ferð. í framkvæmd
hefur bankakerfið treyst á að löggjafinn
heimilaði þetta en dómur Héraðsdóms
Reykjaness fyrr á þessu ári gekk í aðra
átt og því er réttaróvissa á þessu sviði
sem Alþingi verður að leysa.
Afstaða manna til þessa byggist á
misskilningi. Það verður að tryggja við-
skiptaöryggi í sjávarútvegi líkt og öðr-
um atvinnugreinum."
Andstæðingar eru að taka
afstöðu með óprúttnum
útvegsmönnum
Andstæðingar þessa vísa gjarnan til
greinar í lögum um stjórn fiskveiða sem
kveður á um að fiskistofnamir og fiski-
ÆGIR 23