Ægir - 01.10.1996, Qupperneq 37
DET NORSKE VERITAS
HAFNARHVOLI, TRYGGVAGÖTU, SÍMI 551 5150, FAX 561 5150
Óskum áhöfn og útgerð til
hamingju með skipið og
þökkum samstarfið við
endurbygginguna. Um borð í
Erni KE eru rafmagnstöflur frá
Rafboða Garðabæ hf.
ORN KE 13
ÉFfíAFBOÐl GARÐABÆh/f
Skeiðarás 3 • 210 Garðabær • Símar 565 B096 S.
896 3596 • Fax 565 8221
Ný vog frá Marel
„Með þessari nýju vog erum við fyrst og fremst að svara
kröfum iðnaðarins um ódýrari vog sem uppfyllir sömu kröfur
um gæði, styrk og endingu og önnur framleiðsla okkar,“ sagði
Geir A. Gunnlaugsson forstjóri Marel þegar M-1000 vogin frá
Marel var kynnt.
M-1000 vogin markar upphafið að sókn Marels inn á mark-
aði fyrir smærri og ódýrari vogir. Gert er ráð fyrir að vogin kosti
aðeins 120 þúsund krónur sem er aðeins um helmingur af
verði ódýrustu voganna frá Marel. M-1000 er hönnuð af Ingólfi
Guðmundssyni iðnhönnuði og er Marel þar með fyrsta íslenska
fyrirtækið til þess að ráða iðnhönnuð í þjónustu sína og tók
hönnunin tvö ár.
Vogin er seld samansett og tilbúin til notkunar. Hún er úr
ryðfríu stáli og auðveld í þrifum. Hún getur vegið 3 kg þunga
með 1 gramms nákvæmni og getur sýnt þungann í fjórum ólík-
um mælieiningum, kílóum, grömmum, pundum og únsum. Hún
þolir hita frá -10 gráðum upp í 40 gráður og stenst svonefndan
IP 67 staðal um vatnsþétti og er hægt að sökkva henni í vatn
án þess að hún bíði skaða af.
Það má segja að markaðurinn hafi beðið eftir þessum grip
því eftir að hún var kynnt
í fyrsta skipti á Norfish
sýningunni í Noregi í
sumar bárust þegar 20
pantanir sem hefur fjölg-
að mikið síðan. Ætlun
Marelsmanna er að
fjöldaframleiða M-1000 í
þúsundatali árlega og
verður reynt að hafa
vogina ávallt til á lager
en fram til þessa hefur
Marel eingöngu framleitt
vogir upp í pantanir.
ægir 37