Ægir - 01.01.1997, Blaðsíða 37
Framan á aöalvél er eitt aflúttak og
þar er fasttengd vökvadæla fyrir vindu-
búnaðinn. A niðurfærslugír er eitt aflút-
tak sem knýr riðstraumsrafala frá Stam-
ford 40 KVA, 32 KW, 3 x 220 V, 50 Hz.
Við rafala er milligír sem gefur út stöð-
ugan snúningshraða miðað við breyti-
legan snúningshraða á aðalvél. Milli-
gírinn er af gerðinni Atlanten Var G
System með hámarksyfirfærslu 33,7
KW, 45,2 hö.
Annar vélbúnaður: I bátnum er ein
hjálparvél frá Cummins gerð 4 BT 3,9,
54 KW, 74 hö við 1500 sn./mín og knýr
riðstraumsrafala frá Stamford 40 KVA,
32 KW, 3x220 V, 50 Hz.
Stýrisvél er frá Scan Steering gerð MT
500, snúningsvægi 0,5 tm. Vatnshita-
Mœli- og stjórntæki í stýrishúsi.
SANDVIK SK 188
Óskum útgerð og áhöfn innilega til hamingju með skipið.
Aðalvél skipsins er frá SCANIA
og er af gerðinni DS-11, 275 hestöfl.
Skipið er búið Segulvariator 40 KVA frá AG-Energi í Noregi.
Fiskislóð 137A- 101 Reykjavík
Símar: 562 0095 - 562 7095 • Fax: 562 1095
ÆGIR 37