Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1997, Blaðsíða 19

Ægir - 01.01.1997, Blaðsíða 19
Stærstur hluti fer í þennan flokk en sjaldgæft er ab fiskurinn fari yfir 10 grömm. Ekki óþrjótandi auðlind Pétur segir fulla ástæðu til að fara ab öllu með gát í þessum rekstri enda um lítinn stofn ab ræða og erfitt að segja enn hvort um þetta sé verulega arðvæn- leg vinnsla. „Svona auðlind er ekki óþrjótandi og stofninn er líka lítill miðað við þá stofna sem við erum alla jafna að veiða úr hér vib land. Sem stendur erum við einir í þessari vinnslu. Ég hef heyrt um aðila sem gera sér miklar vonir um þessa vinnslu en slíkt er ekki raunhæft. Búnaðurinn er dýr, bæði gildrurnar til veiðanna og vinnslulínan í landi þann- ig að ég tel skynsamlegast ab menn bíði og fylgist með hvernig tilraunin hjá okkur gengur. Það óskynsamlegasta sem gæti gerst væri ef margir færu í þetta og enginn kæmi undir sig fótunum. ígul- keraveiðarnar eru gott dæmi um hvern- ig farið getur ef menn gæta sín ekki. Við sögðum alltaf á sínum tíma að þar væri um ofveiði ab ræba og í dag sést vel ab þetta mat var rétt vegna þess að nú er varla fáanlegt ígulker sem hægt er ab vinna. Sú grein er einfaldlega hrunin," segir Pétur. Vistvænar veiðar Hafrannsóknastofnun hefur fylgst náib með beitukóngsveiðunum hjá íshákarli. Þær eru stundaðar á innanverðum Breiðafirði og fara þannig fram ab sér- smíðaðar plastgildrur eru lagöar út en í þeim er agn sem beitukóngurinn sækist eftir. Hann skríbur upp á gildrurnar og dettur ofan í þær og er því lifandi þegar þær eru dregnar. Gildrurnar liggja í sjó í tvo sólarhringa en eftir að búið er að losa úr þeim er beitukóngurinn settur í kör og þess gætt að hann þorni ekki. í raun er fiskurinn því lifandi allt þar til hann er soðinn inni í verksmiðjunni. í sumum tilfellum eru gildrurnar full- ar eftir tvo sólarhringa, þ.e. meb 10-12 kíló af beitukóngi. Fjórir bátar stunda nú veiðar fyrir íshákarl og getur hver bátur dregib upp í 800 gildrur á dag. Gildrumar eru dregnar í trossum og eru Aflinn losaður úrgildrunni. I sumum tiifellum eru gildrumar fullar þegar þœr eru dregnar. 50-100 gildrur í hverri trossu. „í raun eru þetta mjög vistvænar veiðar. Þær valda ekki botnraski og meðafli er nánast enginn," segir Pétur. Helmingur stofnsins í Breiðafirði Gildmrnar sem íshákarl notar koma frá Suður-Englandi en þar komst fyrirtæk- ið í samband við abila sem nýlega var byrjaður ab smíða þessa gerð. Þaö sem af er hafa gildrurnar reynst vel. í heild hefur íshákarl keypt um 5000 gildrur og kostar hver þeirra um 3000 kr. þegar fylgibúnaður hefur verið tal- inn með. Kostnaöurinn vib gildrurnar einar og sér er því um 15 milljónir króna. „Okkur líkar þessi vinnsla ágætlega og sama segja þeir sem á sjónum eru. Þessar veiðar eru ekki ólíkar öðrum á þann hátt að menn þurfa að spá og spekúlera í miðunum enda er slóðin lít- ið sem ekkert þekkt." Pétur segir að Hafrannsóknastofnun meti veiðanlegan beitukóng við ísland 2500-3000 tonn á ári. Helmingur gmnnsævis vib landið er í Breiðafirði og er talið ab um helmingur beitukóngs- stofnsins sé þar. Pétur telur að til að verkefnið geti gengiö upp þurfi íshákarl að veiða 1000-1200 tonn á ári. „Út frá þessu gefur auga leið ab hérna getur því ekki verið á ferbinni neitt stórævintýri fyrir marga aðila," segir Pétur. ÆGIR 19

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.