Ægir - 01.01.1997, Blaðsíða 13
FISKMARKAÐSMÁL
Elstu fiskmarkaðirnir hér á landi fagna um
þessar mundir 10 ára afmæli en á þessum tíu
árum hefur mikil þróun orðið. Miðað við þær
raddir sem heyrðust í upphafi má segja að
stærsti sigur fiskmarkaðanna sé í raun sá að
hafa sannað tilverurétt sinn hér á landi því
sannast sagna var þeim ekki á sínum tíma
spáð glæstri framtíð. Ekki er þar með sagt að
fiskmarkaðirnir lifi sældarlífi en aðstandendur
markaðanna telja að þeir séu komnir til að vera
og að sú þróun muni halda áfram að æ hærra
hlutfall aflans hér við land fari í gegnum mark-
aðina til vinnslu. Nýverið voru stofnuð samtök
uppboðsmarkaða og bindast þar böndum
markaðir í báðum kerfunum sem hér á landi
eru við lýði, þ.e. íslandsmarkaði og Reiknistofu
fiskmarkaða. Eitt af þeim málum sem nýju
samtökin vilja blanda sér í er krafa sjómanna
um að allur fiskur fari á markað. Ekki erþó æt-
lunin að taka afstöðu til þessarar kröfu heldur
fyrst og fremst að halda því á lofti að þetta sé
framkvæmanlegt ef vilji manna standi til.
„Engin spurning að allur fiskur
getur farið í gegnum fiskmarkaði"
segir Ólafur Þór Jóhannsson, formaður nýstofnaðra
samtaka uppboðsmarkaða
„Þaö eru mörg mál sem snúa aö
mörku&unum öllum og við vildum
því tala einni röddu en heildar-
samtök eru líka nauðsynleg gagnvart
þeim aðilum sem eiga erindi við fisk-
markaðina alla. Með þessu geta þeir
beint erindum sínum á einn stað,"
segir Ólafur Þór Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðar Suður-
nesja og formaður nýstofnaðra sam-
taka uppboðsmarkaða þar sem mæt-
ast í einum samtökum allir fiskmark-
aðir Iandsins. Samtökin voru stofn-
uð í nóvember síðastliðnum og í
raun má segja að þar með hafi aftur
verið tekið upp fyrirkomulag sem
viðhaft var fyrir 10 árum þegar for-
svarsmenn markaðanna hittust á
reglubundnum fundum til að ræða
sín málefni.
„Við viljum vinna í mörgum hags-
munamálum okkar, s.s. vigtarmálum,
samskiptum við Fiskistofu, kjaramál-
um, flutningsmálum og fleim. Við vilj-
um líka koma að umræðunni um hvort
hægt sé að setja allan fisk á markaö.
Ólafur Þór Jóhannsson, formaður samtaka
uppboðsmarkaða. „Tökum ekki afstöðu til
kröfunnar um að allur fiskur fari á markað
en við viljum leggja áherslu á að slíkt sé
framkvœmanlegt." Mynd: Víkurfréttir/Keflavík
Við höfum tekið ákvörðun um aö taka
ekki afstöðu með eða á móti í því máli
enda emm við þeir aðilar sem veita
þjónustuna. Við viljum hins vegar
leggja áherslu á að þetta er framkvæm-
anlegt," segir Ólafur Þór í samtali við
Ægi og viðurkennir að með samtök-
unum hafi fiskmarkaðimir í raun tekið
upp innra gæðaeftirlit enda hafi sam-
tökin sent ffá sér ályktun þar sem þeim
áhuga sé lýst að fiskmarkaðirnir verði
áfram í fremstu sveit þeirra sem beiti
sér fyrir að auka gæði á hráefninu.
Kunnuglegar úrtöluraddir
Ólafur Þór segir ekki mikinn þrýsting á
fiskmarkaðina aö taka afstöðu með
kröfu sjómanna um að allur fiskur fari
á markað. „Þetta mál var eitt af þeim
sem ýttu okkur út í að stíga skrefið til
fulls og stofna með okkur samtök. Um-
ræðan um þetta mál er mikil og verður
vafalítið á næstunni. Ég held að það sé
engin spuming að allur fiskur getur far-
iö á markað. Það em sömu raddir og
sömu menn sem segja núna að það sé
ekki ffamkvæmanlegt að setja allan fisk
á markað og sögðu fyrir 10 ámm að
ægir 13