Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1997, Blaðsíða 16

Ægir - 01.01.1997, Blaðsíða 16
Glíma Vestfirðinga við fólksfækkun og slæmt atvinnuástand: Sameining fyrirtækja er lykilatriði segir Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaður Vandi í atvinnumálum á Vestfjöröum hefur mikib veriö í sviösljósinu aö undanförnu enda í sumum byggöar- lögum viö rammari reip aö draga í þessu efni en annars staöar á land- inu. Nýveriö birtust tölur um mann- fjölda í landinu og á einstökum svæöum þar sem fram kom aö Vest- firöingar hafa ekki verið færri síðan um miöja síöustu öld. Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaöur Vestfirb- inga, segir aö þarna sé viö hluta af stærra byggbavandamáli aö etja en hvab atvinnumálin á Vestfjörbum áhræri þá veröi ab viðurkennast ab Vestfirbingar hafi verib of seinir á sér ab bregbast viö. Málefni dagsins í dag sé ab horfa fram á veginn og byggja upp enda sé tilgangslaust ab velta sér upp úr fortíbinni. „Jú, það er rétt aö við erum að sjá fólksfækkun sem aldrei fyrr. Hún er alls staöar út um landið en það má vera ljóst að þau ráð sem við höfum talið okkur búa yfir til aö stuöla aö jafnvægi í byggð landsins duga ekki. Það er því trúlegt aö vib þurfum að hugsa þessi mál öll upp á nýtt. Ég er þeirrar trúar og hef þá sannfæringu að sem mest jafnvægi í byggðinni í landinu sé mjög æskileg fyrir þjóðfélagið. Síðan eru kannski aörir sem ekki eru þessarar skoöunar en ég get ekki annað en viðurkennt að viö þurfum aö leita nýrra leiöa og hugsa málin frá upphafi á nýjan leik," segir Einar Oddur. Margar skýringar á vanda sjávarútvegsins vestra Sjávarútvegurinn er að sönnu undir- stööuatvinnugrein á Vestfjöröum og ljóst má vera að vandinn í atvinnu- málunum er aö stórum hluta tilkom- inn vegna erfiðleika sjávarútvegsfyrir- tækjanna í fjóröungnum. „Þaö er mjög alvarlegt hve sjávarút- vegurinn hefur staðið höllum fæti á Vestfjörðum á undanförnum árum og þar kemur margt til. Sumir segja, kann- ski með réttu, að vib höfum verið aö horfa alltof mikið til baka, horfa til þess hve illa við fórum út úr skipan mála „Mér finnst Vestfirðir hafa sett töluvert ofan í huga mjög margra." með stjórn fiskveiðanna sem er stað- reynd að kom illa við mjög marga á Vestfjörðum. Hér má til dæmis nefna rækjuiðnaðinn sem varð fyrir óhemju- legu óréttlæti þegar hann sem hafbi byggt upp alla reynsluna var sviptur öllum veiðirétti. Hins vegar ber okkur í dag að horfast í augu vib staðreyndir- nar og reyna að horfa fram á veginn og sjá út hvað geti orðið okkur að liöi við að bæta úr. Það er ekki vafi í mínum huga að við höfum veriö alltof seinir að reyna að sameina fyrirtæki, stækka þau og bjóða út hlutafé til að ná inn nýju fjármagni í fyrirtækin. Þetta er okkur lífsnauðsyn í dag og er búið að dragast alltof lengi." Höfum verið of seinir að bregðast við -Á þetta frekar við um Vestfirði en aðra landshluta? „Já, við höfum verið seinni til en aðrir að grípa til þessara aðgerða. Ég held að sú gagnrýni á okkur sé rétt. Ég veit ekki hvort það þjónar útaf fyrir sig nokkrum tilgangi að velta sér upp úr skýringum á þessu. Að mínu mati er staða okkur svona og við verðum að einhenda okkur að því verkefni að efla fyrirtækin og stækka þau. Þessi þróun er að hefjast núna á Vestfjörðum og hún verður að ganga hratt fyrir sig." Einar Oddur segir að bættar sam- göngur á Vestfjörðum hafi mikið að segja í þeirri vinnu sem framundan er vib uppbyggingu atvinnulífsins. „Betri samgöngur hafa mikla þýðingu og við höfum horft upp á gríðarlegar byltingar á síðusm mánuðum og missemm. Engu ab síður erum við á eftir með okkar vegakerfi að stórum hluta. Þetta er mjög stórt og dreifbýlt kjördæmi og mjög mikiö verk óunnið í vegamálum. Ég held ab menn séu sammála um að við verðum ab einbeita okkur í þessum efnum en það er miklu fleira sem við þurfum að fara að horfa á í byggðamál- unum, það er greinilegt." Munum ná okkar vopnum Nálægð vib gjöful og góð fiskimið hef- ur ætíð verið lykilatriði fyrir sjávarút- veginn á Vestjörðum og Einar Oddur segist hafa þá bjargföstu trú að Vestfirð- ir hafi bolmagn til að stunda útgerð og fiskvinnslu með ekki síðri árangri en aðrir. „Þetta gerir nálægöin við hin miklu og góðu mið. Ég er sannfærður um að vib munum ná vopnum okkar 16 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.