Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1997, Blaðsíða 22

Ægir - 01.01.1997, Blaðsíða 22
Steingrímur J. Sigfússon, formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis: Þróun til fullvinnslu afurða verður ekki án landvinnslunnar „Mér fmnst mjög erfitt að sjá fyrir mér fram- tíð íslensks sjávar- útvegs án þess að landvinnsla á bolfiski sé umfangsmikill þáttur," segir Stein- grímur J. Sigfússon. „Fyrir sjávarútvegsnefndnmi liggja nú á vorþingi nokkur þing- mannamál til umfjöllunar og eitt þeirra er þekkt mál um takmarkanir eða afnám framsals á veiðiheimildum. Við höfum sent það mál til umsagnar og það verður síðan rœtt í sjávarútvegsnefndinni og þar skýrist hvernig línur liggja gagnvart afgreiðslunni. Við höfum einnig til umfjöllunar mjög stórt mál um endurskoðun og afnám úreldingarreglnanna en það er ekki síður stórt mál, ekki síst fyrir uppsjávarfiskaflotann. Auk þess er eitthvað á leiðinni til okkar þannig að mér sýnist að nóg verði að gera hjá nefndinni á vorþinginu. Til viðbótar er svo ekki hœgt að útiloka að á borð nefhdarinnar komi, eins og stundum hefur gerst, eitthvað sem tengist hugsanlegri iausn í kjaradeilu sjómanna og útgerðar- manna," segir Steingrímur ]. Sigfússon, formaður sjávarút- vegsnefndar Alþingis, um helshi verkefnin á komandi vorþingi. Steingrímur lýsir miklum áhyggjum afástandi landvinnslunnar um þessar mundir og segist því miður ekki sjá miklar aðgerðir í farvatninu til aðstoðar í þeim byggðarlögum sem eru mjög iila sett vegna þrenginga burðarfyrirtœkja í atvinnulífinu. Rammi um úthafsveiðarnar Steingrímur segir að þrjú mál hafi verið meginverkefni á borðum sjávarútvegs- nefndar á haustþinginu. í fyrsta lagi var um að ræða löggjöf um veiðar utan ís- lensku lögsögunnar en það mál var einnig til meðferðar á Alþingi í fyrra en löggjöfin var afgreidd nú skömmu fyrir þinghlé. „Um þetta mál var reyndar ekki alveg samkomulag. Að stofni til var þetta frumvarp sem var unnið af nefnd, svokallaðri úthafsveiðinefnd, sem starf- aði á vegum sjávarútvegsráðuneytisins á árunum 1993-1995. í þeirri nefnd náðist heldur ekki neitt heildarsam- komulag heldur varð niðurstaðan sú að menn unnu þetta frumvarp og lögðu fram sem drög til ráðherra sem valdi aö leggja þetta fram óbreytt á þinginu í fyrra. í sjávarútvegsnefnd myndaðist svo meirihiuti í sjávarútvegsnefnd sem samanstóð af mér og stjórnarliðum og við lögðum til ýmsar breytingar á frum- varpinu í fyrravor en frumvarpiö var lagt fram aftur í haust með þessum breytingum sem við vorum búnir að vinna og þannig fór frumvarpið í gegn. Með þessu er kominn lagarammi um úthafsveiðarnar sem á að skapa okkur fullnægjandi lagaheimildir til að grípa til stjórnunaraðgerða þegar búið er semja um veiðar á einhverjum úthafs- svæðum og leggja á nauðsynleg gjöld til að standa undir eftirliti og þess hátt- ar. Þessi lög eiga í öllum aðalatriðum að vera í takt við þróunina samkvæmt út- hafsveiðisamningnum. Hitt aðalmál okkar á haustþinginu var að gefa umsögn um úthafsveiði- samninginn. Hann var formlega séð sendur til utanríkismálanefndar eins og venja er um milliríkjasamninga en fór svo beint til okkar 22 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.