Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1997, Blaðsíða 28

Ægir - 01.01.1997, Blaðsíða 28
Fertugt happaskip... Heimsótti aflaskipstjórann Guðmundur Ófeigsson, fyrrverandi skirfstofustjori Júpitersútgerðarinnar í Reykjavík hafði ekki komið um borð í fúpiter síðan útgerðin seldi skipið árið 1977 og tók því boði vel þegar Ægir óskaði eftir að fá mynd afhonum um borð. „Jú, ég hefði gaman afþví að heimsœkja skipstjórann, þetta er aflamaður," sagði Guðmundur um Lárus Grímsson, skipstjóra, en þeir félagar eru hér um borð í skipinu skömmu áður en það hélt í sína fyrstu veiðiferð á árinu 1997. erfiö. Áföll uröu vegna vélarbilana og afli ekki nægur til að standa undir kostnaði. Árið 1957 aflaði skipið um 3000 lesta og strax á árinu 1958 komu upp raddir um að selja skyldi skipið. Tillaga þess efnis í bæjarstjóm var felld. Stöðugur rekstrarvandi Veturinn 1959 var reksturinn orðinn afleitur og sárafáir heimamenn á skip- inu heldur var það mannað að stómm hluta Færeyingum og öbmm aðkomu- mönnum. í febrúar árið 1960 var skip- inu lagt í Reykjavík vegna fjárhags- vandræða útgerðarinnar og mikið þing- að heima fyrir um hvað til bragbs skyldi taka. Vilji var innan bæjarstjórn- arinnar að koma skipinu á ný á veiðar og seint í marsmánuði hélt það til veiöa en sagan var sú sama og ábur. Fór nú svo ab lánadrottnar útgerðarinnar skuldbundu hana til að láta Gerpi landa í Reykjavík sumarlangt. Þann 10. júní var tekin fyrir og samþykkt tillaga í bæjarstjórninni á Neskaupstað þess efnis að selja skipið ef viðunandi tilbob fengist. Eins og annars staðar er getið fékk Tryggvi Ófeigsson, útgerbarmaður og eigandi Júpitersútgerðarinnar í Reykjavík, áhuga á skipinu og var hann sá eini sem því sýndi áhuga. Tilboðiö Gerpir í smíðum Þessi mynd var tekin fyrir ríflega 40 árum í skipasmíðastöðinni í Bremerhaven í Þýska landi þar sem Gerpir var í smíðum. Þjóð- verjar voru á þessum tíma viðurkenndir fyrirgóð skip. hljóöaði upp á 20.250.000 og nú lauk öbru tímabili togaraútgerðar á Nes- kaupstað Gerpir fékk nú nafnið Júpiter RE-161 og í hönd fóru góð ár hjá Tryggva Ófeigssyni og hans samstarfsmönnum. Guðmundur Ófeigsson, bróðir Tryggva, var skrifstofustjóri útgerðarinnar á þess- um blómatíma og í samtali við Ægi sagðist hann eiga góbar minningar um skipið. Júpiter hafi í upphafi verið vel byggður og „fallegar línur í honum," eins og Guðmundur orðar þab. Aflinn var líka góður og aflabi skipið þess fisks sem síban var unninn í frystihúsi út- gerðarinnar á Kirkjusandi í Reykjavík. Gerður að nótaskipi Árið 1977 seldi Tryggvi skipið til Hrólfs Gunnarssonar, skipstjóra, en hann hafði mikla reynslu af nótaveiðum. Hrólfur lét breyta skipinu úr síðutogara í nótaveiðiskip og þar með var Júpiter orðinn eitt af öflugustu nótaveiðiskip- um flotans. í eigu Hrólfs var skipið til ársins 1989 en þá seldi hann helming í útgerbinni til Einars Guðfinnssonar hf. á Bolungarvík en sökum rekstrarerfið- leika þess fyrirtækis átti útgerðin alltaf í vanda. í kjölfar gjaldþrots Einars Guöfinnssonar hf. þróuðust mál svo að aöilar á norðausturhominu, þ.e. á Þórs- höfn, Vopnafirði og víðar stofnuðu fyrirtækið Skálar ehf. um kaup á skip- inu og keyptu þab árið 1993. Stærstu aðilarnir að þessari útgerð em Hraðfrystistöð Þórshafnar, Tangi á Vopnafirði, Vopnafjarbarhreppur, Þórs- hafnarhreppurm, Svalbarðshreppur, Olíufélagið og fleiri. Markmibið var að tryggja hráefni til vinnslu á stöðunum og treysta atvinnulífið og þarf ekki ab hafa mörg orb um að sú fyrirætlan hefur gengib eftir eins og sjá má af aflatölunum. Er ekki fjarri lagi að tala um að skipið hafi gengið í gengum blómaskeið á síðustu ámm því uppsveifla hefur verið í loðnuveiðun- um eins og öllum er kunnugt sem með 28 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.