Ægir - 01.09.1997, Blaðsíða 10
90 ára
'^ííc-,
„Þér fiskimenn
og farmenn!
Yður er þetta
rit ætlaðu
Ofaytgreind orð Matthíasar Þórð-
arsonar, skipstjóra og stofnanda
tímaritsins Ægis, birtust í fyrsta ein-
taki tímaritsins Ægis sumarið 1905
og þar tneð hóf eldhuginn Matthías
frá Móunt þá tímaritsgöngu sem
staðið hefur ncer samfellt síðan og
skilað 90 árgöngum Ægis inn í ís-
lenska fjölmiðlaflóru. Matthíasi var
Ijóst niikilvœgi þess að sjávarútvegur-
inn astti sér málsvara og fylgdar-
menn á prenti og hann var á þessum
upphafsárum óspar á að setja fraiti
hvatningar í blaði sínu sem verið
gœtu til framfara fyrir íslenskan
sjávarútveg.
„Af áhuga fyrir málefninu og fyrir
áskoranir einstakra manna kringum
landið vil jeg nú byrja á fyrirtæki
þessu," sagði Matthías í fyrsta blaði
sínu í júlí 1905, „þar sem ég sje að
þörfin fer sívaxandi, en engar líkur eru
til að aðrir munu verða til þess, jafn-
framt þó mjer sje ljós hve vandasamt
og ábyrgðarmikið það starf er, sem jeg
tekst á hendur."
Um Matthías frá Móum hefur verið
sagt að hann hafi verið drjúgum meira
en áhugasamur og fróður um sjávarút-
vegsmál. Hann hafi verið hreinn af-
reksmaður í þeim efnum. Eftir hann
liggja merkileg ritverk sem varða sjáv-
arútveginn, bæði síldarsaga, æviminn-
ingar og rit um sjávarútveg en Ægir
var þeirra fyrst og merkast.
10 ÆCiIR --------------------------
En það er ekki einungis ritstörfin
sem Matthías er eftirminnilegastur fyr-
ir heldur þátttaka hans í félagsstörfum
og greininni sjálfri. Til hins síðar-
nefnda heyrir útgerð hans, m.a frá
Sandgerði en Matthías hóf útgerð það-
an fyrstur manna og lagði þar grunn
að einni mestu verstöð landsins.
Matthías var meðal þeirra sem
hvöttu til stofnunar Fiskifélags íslands
og forseti þess var hann fyrstu þrjú
árin. Sjálfur lét hann þess getið í af-
mæliskveðju til Ægis í tilefni 40 ára af-
mælis árið 1947 að blaðið hafi alla tíð
borið vott um hinn öfluga bakhjarl
sem Fiskifélag íslands sé og vafalítið
hefði ritið aldrei náð þeim þroska sem
raun beri vitni nema eiga félagið að.
Og í lok kveðju sinnar sagði „faðir
Ægis":
„Að öllu athuguðu, eftir því sem
mér er frekast kunnugt, mun Ægir
mega teljast meðal hinna beztu fiski-
rita er gefin eru út austan og vestan
Atlantshafs."
ÆGIR
MÁNAÐAKIT FISKIFÉLAGS tSLANDS
25. árfl. | Reykjavlk. — Júli 1S32. | Nr. 7.
Fyrstu ritstjórarnir
Fyrstu ritstjórar tímaritsms Ægis, þeir Matthías Þórðarson frá Móum, t.v., og Sveinbjörn
Egilsson. Matthías var eldhuginn sem kom útgáþmni af stað og hélt um stjórnvölinn
fyrstu árin en Sveinbjöm tók við starfi hans árið 1914.