Ægir

Årgang

Ægir - 01.09.1997, Side 29

Ægir - 01.09.1997, Side 29
íslenskir sjómenn í landlegu. Mynd: Jón&Vigfus/Minjasafiiið á Akureyri þorp, sem byggðust öðru fremur á vél- bátaútgerð. Svipuð dæmi mætti nefna víðar af landinu, en enginn efi leikur á því, að vélbátaútgerðin gjörbreytti á skömm- um tíma útgerðarháttum og byggða- þróun víða um land. Vélbátar voru gerðir út frá flestum sjávarplássum, og þar sem útgerðin var blómlegust, fjölg- aði fólki og atvinna jókst. Á öðrum stöðum, ekki síst á Norður- og Austur- landi, var útgerðin hins vegar aðeins stunduð á tilteknum árstímum, en út- vegsmenn sendu báta sína tii róðra í fjarlægum landshlutum á vetrarvertíð. Var t.d. mikið um að norðlenskir, vest- firskir og austfirskir bátar reru úr Sand- gerði og Vestmannaeyjum á vertíðinni, svo aðeins sé getið tveggja stórra ver- stöðva. Heima sátu konur, börn og þeir, sem ekki fóru á vertíð, og var oft dauft yfir atvinnulífi ýmissa sjávar- plássa á meðan bátarnir voru í burtu. Allt um það, leikur vart á tvennu, að vélbátaútgerðin hafði margvísleg já- kvæð áhrif og bætti mjög hag fólks við sjávarsíðuna víða um land. Og þegar á allt er litið, hafði vélbátaútvegurinn mikil og djúpstæð áhrif á þróun byggð- ar og sjávarútvegs á fyrstu áratugum aldarinnar. Margar fornar verstöðvar lögðust að sönnu af með tilkomu vél- bátanna, en þegar á heildina er litið, verður ekki annað sagt en að vélbáta- útvegurinn hafi skotið nýjum stoðum undir byggð í fjölmörgum sjávarpláss- um. Útgerð gufuknúinna botnvörpu- skipa, togara, var annar meginþáttur vélvæðingarinnar í íslenskum sjávarút- vegi, en áhrif hennar á atvinnu- og byggðaþróun voru öll önnur en vél- bátaútgerðarinnar. Togaraútgerðin var að mestu bundin við tvær hafnir við Faxaflóa, Reykjavík og Hafnarfjörð, og átti mikinn þátt í vexti og viðgangi þessara tveggja staða allt tímabilið frá aldamótum og fram að síðari heims- styrjöld. Undir lok 19. aldar og í upp- hafi þeirrar 20., var Reykjavík mesti skútubær á landinu og jókst atvinna í bænum mikið er þilskipaútgerðin fékk á fæturna. Með tilkomu togaranna efldist atvinnulífið enn og fólk tók að streyma til útgerðarbæjanna við Faxa- flóa, og þó einkum til Reykjavíkur, í at- vinnuleit. Með vélvæðingunni jókst sókn ís- lenska fiskiskipaflotans að mun og afl- inn, sem á land barst, margfaldaðist. Vélbátarnir sóttu sjó á hefðbundnum vertíðum og stunduðu einkum línu- og REVTINGUR Misjöfn útkoma hjá sj á var útvegsfyrirtækj um Afkoma sjávarútvegsfyrirtækj- anna á fyrri helmingi ársins er af- skaplega misjöfn. Flest fyrirtæki hafa nú kunngert afkomuna á fyrstu sex mánuðunum og kemur ekki á óvart að fyrirtæki sem byggja veru- lega á veiðum og vinnslu uppsjávar- fisks eru að skila góðri afkomu. Sfldarvinnslan í Neskaupstað skil- aði rösklega 250 milljóna króna hagnaði á tímabilinu og hjá Granda/Faxamjöli var afkoman 30% betri en á sama tímabili í fyrra, þ.e. 300 milljónir í hagnað. Haraldur Böðvarsson á Akranesi hefur einnig náð góðu út úr sínum rekstri í ár því fyrstu sex mánuðina var hagnaðurinn 208 milljónir. Af öðrum fyrirtækjum má nefna Jökul hf. á Raufarhöfn með 126 milljóna króna hagnað, Loðnuvinnsl- una á Fáskrúðsfirði með 35 milljóna hagnað, Þormóð ramma-Sæberg með 186 milljóna króna hagnað, Tanga hf. á Vopnafirði með 50 milljóna hagnað og SIF með 94 milljóna hagnað. Sömuleiðis er mikill bati hjá Fiskiðjunni Skagfirðingi frá fyrra ári. En það voru ekki allir sem sáu svo uppörvandi tölur í sínu bókhaldi eft- ir sex mánuði af árinu. Útgerðarfélag Akureyringa tapaði 155 milljónum, Árnes hf. tapaði 45 milljónum, Islenskar sjávarafurðir töpuðu 33 milljónum og Skagstrendingur tapaði 191 milljón króna. AGÍR 29

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.