Ægir - 01.09.1997, Blaðsíða 82
Sala sex plastbáta frá Trejjum hf í Hafnarfirði til Argentínu
kann að vera stökkpallur til aukins útflutnings íslenskra plastbáta:
„Víða um heim er
pólitískur vilji til að efla
smábátaútgerð66
segirAuðunn Oskarsson, framkvœmdastjóri Trefja hf
■\Th í lok septembermánaðar hefst
1 \ útgerð sex 10 tonna plastbáta
frá Trefjum hf. í Hafnarfirði hjá fyr-
irtceki í Argentínu. Bátarnir voru af-
hentir hér á landi í ágiíst og eru allir
búnir íslenskum tcekjum til veiða
með línu, fcerum eða netum. Samn-
ingur um sölu bátanna var undirrit-
aður í maí en sagan er ekki öll sögð
þó eigendur bátanna hafi tekið við
þeim þar sem bceði reyndir skip-
stjórnarmenn og ráðgjafar frá ís-
landi munu sjá um þjálfun starfs-
manna við útgerðina fram á nœsta
ár. Auðunn Óskarsson, fram-
kvcemdastjóri Trefja hf., segir þetta
verkefni hafa verið mjög mikilsvert,
bceði fyrir Trefjar og önnur íslensk
fyrirtceki sem því tengjast. Fyrst og
fremst verði fyrirtcekið að byggja á
útflutningi í framtíðinni og nýta sér
þann velvilja sem smábátaútgerð
njóti í mörgum löndum.
Bátarnir sem fóru til Argentínu eru
af gerðinni Kleópatra en hér á heima-
markaði hefur þessi stærð báta lítið
sem ekkert verið seld á undanförnum
árum þar sem bátarnir eru yfir mörk-
um í krókakerfinu. Fyrir þann flokk
smíðar Trefjar þrjár stærðir af bátum
sem hafa framleiðsluheitið Skel.
„Með argentísku bátunum voru
seldar færarúllur, línukerfi og lína og
síðan netaspil og net. Byrjunarhug-
myndin er síðan að tveir og tveir verði
með hverja gerð veiðarfæra," segir
Auðunn en takmörk munu ekki vera á
veiðileyfum fyrir þessa báta við
strendur Argentínu.
„Okkar þáttur í pakkanum er bátur-
inn og það sem að honum snýr en síð-
an selur DNG veiðibúnaðinn. Þar fyrir
utan koma að fjölmörg önnur fyrir-
tæki hér heima þannig að það njóta
margir verkefnis af þessu tagi. Fyrir
okkur er þetta draumaverkefni og hag-
ræðing af smíði þetta margra báta í
einu var í raun meiri en við áttum von
á. Hér heima erum við nánast undan-
tekningarlaust að smíða fyrir einstak-
linga og alltaf þarf að mæta sérþörfum
hvers og eins en í þessu tilfelli eru allir
bátarnir eins, bæði að innréttingum
og föstum tækjum og það skiptir
miklu máli á smíðatímanum."
Samningurinn við argentíska fyrir-
tækið er að andvirði um 100 milljónir
króna í heild og í honum felst einnig
þjálfun í Argentínu fyrir starfsmenn
við útgerðina. Reyndir íslenskir skip-
stjórar fara til Argentínu og þar er til
að mynda einnig starfsmaður frá ráð-
gjafafyrirtækinu Nýsi í tengslum við
Einn af bátunum sem fóru frá Trefjum til Argentínu. Reiknað er með að þeir verði
komnir í notkun nú í lok september í Argentínu.
82 MIU