Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1997, Page 69

Ægir - 01.09.1997, Page 69
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEOI Víkingiir AK kemur hlaöinn loðnu til hafnar á Akranesi. Myndin Óskar Anmrsson til þess að Hafrannsóknastofnun geri út skip til loðnuleitar og rannsókna á sumrin úti fyrir Norðurlandi og Viðar leggur áherslu á þetta atriði. „Mér finnst útilokað að menn gefi hér út kvóta miðað við útreikninga á smáloðna frá í fyrra því það getur komið hafís eða annað sem hefur áhrif á stofninn. Að mínu mati er því nauð- synlegt að Hafrannsóknastofnun fylgi eftir útreikningum sínum með rann- sóknum yfir sumarmánuðina því við megum ekki gleyma því að loðnan er meira og minna undirstaðan undir öll- um sjávarafla hér á landi. Menn vita til dæmis ekkert hvaða áhrif kaldur sjór úti fyrir Norðurlandi síðastliðinn vetur hefur haft á loðnuna. Óvissan er því alltof mikil og menn vilja fá meiri upplýsingar úr rannsóknum á sumrin til að geta gert sér grein fyrir á hverju er von á vetrarvertíðinni. Og auðvitað á að gera út leitarskip á sumrin því okkur veitir ekkert af mun meiri þekk- ingu á hegðan loðnunnar. Það eina sem sem maður er stöðugt að læra er hversu litla þekkingu maður hefur í raun á loðnunni. Mér finnst mikill munur á því hvernig staðið er að loðnuleitinni og rannsóknum eða hvernig staðið var að sílarleit hér í gamla daga þegar gerð vom út tvö leit- arskip sem stöðugt fylgdust með átu- magni og öðru. Það er því öllum til hagsbóta að vitneskjan aukist," segir Viðar og viðurkennir að árangur í loðnuveiðum á sumrin sé töluvert betri en áður var en það segir hann ekki endilega verða skýrt með stærri stofni. „Inn í þetta spila mörg atriði og menn hafa mikið lært af veiðunum. En ég trúi ekki öðru en að við fáum veiði í október því ef það gerist ekki þá er stofninn heldur ekki í því ástandi sem menn hafa talið. Þá væri útlitið fyrir vetrarvertíðina heldur ekki nógu gott. Ég treysti því á október," segir Viðar. Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins ril sTuðnmgs við sjávanÚTveginn Þegar framleiðsla matvaela er annarsvegar er að mörgu að huga. • hvað þarf ég að gera til að framfylgja lögum og reglum • hverjar eru hætturnar • hvernig er best staðið að framleiðsluferlinu • hvað með geymsluþol, hreinlæti og fleira Rf býður upp á mikla reynslu og þekkingu og er vel í stakk búin til að þjóna íslenskum matvælaiðnaði. Hafðu samband Reykjavik 562 0240 562 0740 ísafjörður 456 3768 456 4789 Akureyrí 462 5725 462 5216 Neskaupstaður 477 1250 477 1923 Vestmannaeyjar 481 1471 4813114 http://www.rfisk.is info@rfisk.is isa@rfisk.is akur@rfisk.is nes@rfisk.is vest@rfisk.is ÆGIK 69

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.