Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1997, Page 60

Ægir - 01.09.1997, Page 60
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins sér hlutverk sitt í þessum breytingum og framþróun stórt. Rf tengir saman skóla, stofnanir og fyrirtæki þannig að hlutverk og starfshættir hvers og eins fái að njóta sín og árangur allra verði betri en ella. Stærri fyrirtæki með sér- menntað starfsfólk munu vafalaust leita eftir sérhæfðari og flóknari rann- sóknum á meðan minni fyrirtæki þurfa frekar almennar upplýsingar, verklagsreglur og skjótar úrlausnir á daglegum vandamálum. Þá hefur Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins brugðist við kröfum viðskiptavina sinna með því að sækja um faggild- ingu á helstu þjónustumælingum stofnunarinnar. Við hlökkum því til að vinna með íslenskri útgerð, fiskvinnslu og tengd- um greinum að þeirri þróun sem í hönd fer. JRC AFTUR Á ÍSLANDI JMA-7000 JFV-250 JFS-80 JLN 627 Radartæki með eða án Arpa og piotti GMDSS Dýptarmæiar margar gerðir Hringsónartæki Lág- og hátíóni StraumLogg Vai um 3 dýpis- skaia. 4 geislar á 125 khz niður á 400 m dýpi. 4 geisia dýptar- mæiir FJARSKIPTABUNAÐUR INMARSAT A, B, C & M NAVTEX 0G RADARSVARAR VEÐURKORTARITAR 0G MÓTTAKARAR VIÐURKENNDUR BÚNAÐUR ' NCU710 MF/HF RADIO EQUIPMENT SSB, VHFOG UHF TALSTÖÐVAR LEITIÐ UPPLYSINGA HJA RAFHUS niMFHUS FISKISLÓÐ 94 • REYKJAVÍK • SÍMI: 562 1616 • FAX 562 7366 xiivx REVTINGUR Mun meira af fiski frá Færeyjum á markaði í Bretlandi Færeyingar hafa það sem af er þessu ári flutt út mun meira en áður af fiski á markaði í Bretlandi. Fyrstu fimm mánuði þessa árs fluttu þeir út nálega 17.000 tonn af ferskum eða ísuðum fiski til Bretlands en það er um helmingi meira en á sama tíma í fyrra. Fyrstu fimm mánuði ársins nam heildarinnflutningur Breta á ferskum og frystum þorski samtals um 35.000 tonnum. Mest var flutt inn frá Noregi eða um 13.300 tonn en innflutningur frá Færeyjum nam 12.650 tonnum og jókst um 4.700 tonn eða nálega 60%. Skoskir sjómenn hafa kvartað sáran undan löndunum færeyskra skipa í skoskum höfnum og telja að þær hafi valdið miklu verðfalli á þorski og ýsu. Fiskverkendur í Bret- landi vilja á hinn bóginn ekki heyra á það minnst að reynt verði að stemma stigu við þessum innflutn- ingi. Evrópusambandið hefur reynt sigla milli skers og báru og taka til- lit bæði til sjómanna og framleið- enda án þess þó að lausn hafi fund- ist. Vegna umkvartana sjómanna í Skotlandi fór Evrópuráðið fram á það við Færeyinga nú í haust að þeir reyndu að beina hluta af útflutningi sínum á aðra markaði og forðast að yfirfylla markaði í Skotlandi. Tals- maður ráðsins viðurkenndi hins veg- ar að ekki hefði tekist að sýna fram á beint samhengi milli landana fær- eyskra skipa og lágs verðs í skoskum höfnum. 60 ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.