Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1997, Blaðsíða 64

Ægir - 01.09.1997, Blaðsíða 64
;^QVÍ SJÁV^Q 90 ára Baldvin telur að íslendingar eigi sjálfir að byggja upp vottunarkerfl fyrir sínar sjávarafurðir. Mynd: jóh gætu vottað landbúnaðarafurðir ekk- ert síður en sjávarafurðir. Markmið okkar á að vera að votta matvæli okk- ar, bæði sjávarafurðir og landbúnaðar- afurðir, í anda lífrænnar ræktunar sem þýðir í huga neytenda vörumerki sem tryggir að varan sé án aðskota- og aukaefna, hún sé framleidd í sátt í um- hverfið og gætt sé dýraverndar. Sam- nefnarinn væri þá hollusta og að vör- urnar séu ekki skaðlegar heilsu fólks og umhverfinu." „Eigum sjálfir að byggja upp vottunarkerfi" Vottun á sjávarafurðir hefur oft borið á góma og ekki er laust við að í um- ræðunni séu menn ráðalitlir gagnvart því hvernig best verði að slíku staðið. Baldvin segir að fyrst og fremst þurfi íslendingar að láta af þeim sið að bíða alltaf eftir því að aðrir komi til að setja þeim leikreglur. REVTINGUR Miklu landað af Rússafiski í Noregi í sumar Spár um að rússneskir togarar myndu landa minna af þorski og ýsu úr Barentshafi í norskum höfnum á þessu ári hafa ekki gengið eftir. Fyrstu mánuði ársins voru landanir Rússa í Noregi þó heldur minni en á sama tima í fyrra. Hins vegar má segja að sprenging hafi orðið nú í sumar og norsk bolfiskvinnsla verið keyrð á rússnesku hráefni. í byrjun apríl höfðu Rússar landað alls 22.500 tonnum eða 6.500 tonnum minna en á sama tíma í fyrra hjá Norges Fsikerlag. En með auknum afla úr Barentshafi í vor og í surnar hefur löndunum fjölgað gíf- urlega þrátt fyrir yfirlýsta stefnu rússnesku fiskveiðinefndarinnar um að stærri hluti aflans skuli landað í heimahöfnum. í júní og júlí í fyrra lönduðu rússnesk skip 18.000 tonnum af fiski en til samanburðar lönduðu þau nú 20.000 tonnum í júnímánuði einurn. Um mánaðamótin ágúst-september höfðu Rússar landað alls um 118.000 tonnum í Noregi en það er 18.000 tonnum meira en á sama tíma í fyrra. „Það er kominn tími til að við setj- um okkar eigin reglur, byggjum okkar vottun upp á þeim grunni sem við höfum sjálfir byggt. í sjávarútvegi höf- um við kvótakerfi sem mikil umræða er um og snýst því miður aðallega um auðlindaskatt. En þetta er umhverfis- kvótakerfi sem á að koma í veg fyrir að gengið sé svo nærri stofnum að þeir verði í útrýmingarhættu. Og ég vek at- hygli á að nú þegar þetta kerfi hefur verið í gildi hér um alllangt skeið eru í fyrsta skipti á þessu ári að koma fram raddir frá sjómönnum sjálfum um að loka beri svæðum vegna þess að geng- ið sé of nærri stofnum. Dæmi um þetta er humarstofninn við Suðurland. Við erum líka með lög og reglur um fiskveiðar sem eru þau ströngustu sem þekkjast í sjávarútvegi í heiminum. Við búum við strangar reglur um möskvastærðir, veiðarnar sjálfar, um- gengni um borð í skipum, frágang á fiski og svo framvegis. Þetta segja sam- tök eins og Unilever og World Wild life líka og búa til eitthvert vottunar- kerfi sem er ekkert annað en viðskipta- leikur fyrir þessara aðila. Það væri frá- leitt fyrir okkur að taka þátt í slíku heldur eigum við að taka þessa aðila á orðinu og votta okkar fisk sem fram- leiðslu byggða á fyrirmyndarkerfi við veiðar og vinnslu. Við þurfum ekki annað en verja það kerfi sem við höf- um sjálf sett okkur og ætli menn að mótmæla þessari vottun þá þurfa þeir hinir sömu að koma fram með rök sem sýna fram á að okkar kerfi sé ekki í lagi," segir Baldvin. -Þú segir með þessu að við eigum sjálfir að byggja upp okkar vottunar- kerfi fyrir sjávarútveginn? „Já, að sjálfsögðu. Við höfum þá sérstöðu að 82% gjaldeyristeknanna koma úr sjávarútvegi og við teljum okkur standa vel að greininni í dag. Við stóðum okkur ekki að sama skapi vel fyrir 20 árum en hægt og bítandi erum við að ná tökum á því sem við erum að gera og byggja upp betra sjáv- arútvegskerfi. Með þetta í farteskinu 64 MGilU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.