Ægir - 01.09.1997, Side 17
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
tengist enn fastar við umheiminn og
margir útlendir stórgróðamenn bíða
þess með óþreyju að það verði sem
fyrst, því að með ritsímasambandinu
hyggja þeir, að þeir hafi lykilinn í
hendi sjer að fjársjóðum íslands, þ.e.
fiskveiðunum, þess vegna verðum við
að gjöra hvað mögulegt er og styðja að
því, að margra alda úrelt fyrirkomulag
á þessum atvinnuvegi verði endurbætt
og fært í það horf, sem aðrar þjóðir
hafa gjört hjá sér, og álíta að sje skil-
yrði fyrir varanlegum framförum; sem
er samvinna bygð á fjárframlögum og
lærdómsríkum bendingum og uppörf-
un þings og stjórnar."
Fiskifélag Islands
tekur við Ægi
Ægir kom út mánaðarlega undir rit-
stjórn Matthíasar þar til í júní árið
1909. Þá hætti blaðið að koma út, ein-
faldlega vegna þess að Matthías hafði
mörg járn í eldi og hafði hreinlega
ekki tíma til að sinna útgáfunni. Aftur
var þráðurinn tekinn upp tveimur og
hálfu ári síðar, eða í janúar árið 1912
en þá hafði Fiskifélag íslands verið
stofnað og eitt af fyrstu verkefnum
þess var að endurreisa útgáfu Ægis.
Matthías var forseti félagsins og rit-
stýrði Ægi áfram.
f fyrsta blaðinu eftir útgáfuhlé sagði
hann að ekki hafi þótt ástæða til að
breyta þessu ágæta nafni ritsins enda
hafi ritið notið mikilla vinsælda strax í
byrjun. Sama merki verði haldið á lofti
sem fyrr og stefnt að sama marki,
„sem sje vexti og framþróun fiskveiða
vorra og siglinga. En þess ber að geta,
að ritið er miklu færara nú en áður að
starfa að ætlunarverki sínu, þar sem
útgefandi þess er nú Fiskifjelag ís-
lands, sem hlýtur að eiga langa og
merkilega framtíð fyrir höndum."
Sveinbjörn við
ritstjórn f 23 ár
Matthías frá Móum hætti ritstjórn
Ægis árið 1914 og við af honum tók
Sveinbjörn Egilsson sem var „víðförull
siglingamaður og fjörugur frásagnar-
maður," eins og um hann hefur verið
sagt. Sveinbjörn hélt áfram því starfi
sem Matthías hafði mótað og hann er
sá maður sem lengst hefur ritstýrt
blaðinu, eða samtals í 23 ár. Svein-
björn var mjög pennalipur og skrifaði
af mikilli sannfæringu um það sem
efst var á baugi hverju sinni. í Ægi árið
1921 er að finna grein þar sem hann
fjallar um slæmt ástand í mótorbáta-
útgerðinni og hann minnir á að þegar
bátar liggi bundnir við bryggju tapi
fjöldamargir störfum sínum með
hörmulegum afleiðingum.
„Fari nú útgerðin flatt eitt árið enn,
þá er óhætt að fara að leita að lyklun-
J. HINRIKSSON ehf.
Súöarvogi 4, Pósthólf 4154,124 Reykjavík,
Sími: 588 6677, Bréfsími: 568 9007, Netfang: poly-ice@itn.is
Heimasíða: http://www.itn.is/poly-ice
„Framleiðendur toghlera í áratugi((
Mikilvægt
hlutverk Ægis
„Ef segja þarf frá sjávarútvegi á
þessari öld, þá spyr maður stundum
sjálfan sig: hvemig færi maður að, ef
Ægir hefði ekki byijað að koma út
einmitt á þessum tíma þegar miklir
atburðir voru að ske í sjávarút-
vegssögunni, svo sem upphaf vél-
bátaútgerðar og togaraútgerðar.“
Asgeir Jakobsson í grein í
Ægi árið 1977þegar minnst
var 70 ára afmœlis ritsins.
ÆGffi 17