Ægir - 01.09.1997, Page 38
90 ára
síðan var alltaf með reglulegu millibili
gripið til þess ráðs að reyna að fjölga
áskrifendum og alltaf tókst að ná ein-
hverjum nýjum við hverja herferð,"
segir Már og bætir við að auk ýmissa
greina og annars efnis sem tengdust
sjávarútveginum hafi verið litið á Ægi
sem málgang Hafrannsóknarstofnunar
og Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðar-
ins sem hvorutveggja voru á sínum
tíma deildir innan Fiskifélagins sem
síðar urðu að sjálfstæðum stofnunum.
Fiskifélag í
alþjóðlegum samskiptum
Auk efnis af innlendum vettvangi
sinnti Ægir fyrr á árum, ekkert síður
en nú, upplýsingum af erlendum vett-
vangi. Már segir að þetta hafi einnig
tengst ýmsum störfum á alþjóðavett-
vangi sem Fiskifélagið tók þátt í.
„Jú, á vissan hátt má segja að Fiski-
félagið hafi verið í fararbroddi í al-
þjóðlegum samskiptum en ríkisstjórn-
in fól starfsmönnum félagsins verkefni
í þessa veru. Þannig tókum við Davíð
Ólafsson t.d. þátt í störfum OECD í
París og Alþjóða hafrannsóknarráðsins
og fleiru. Þetta hafði allt sitt að segja
fyrir félagið," segir Már og nefnir
einnig að Davíð Ólafsson hafi setið
fyrstu tvær hafréttarráðstefnurnar fyrir
íslands hönd og sjálfur sat hann svo
þriðju ráðstefnuna.
Mikil bót að
sölusamtökunum
Már segir að vissulega hafi sjávaútveg-
urinn á íslandi verið sveiflukenndur á
þeim árum sem hann starfaði sem
fiskimálastjóri.
„Sveiflurnar voru stórgerðari en eru
í dag og því réðu ýmis atriði. í fyrsta
lagi hófst saltfiskverkun ekki að gagni
fyrr en nokkrum árum eftir stríð en
hún var aldrei í sama farinu og reita-
þurrkunin hér áður fyrr. Frystiiðnaður-
inn var orðinn rnjög ráðandi á stríðs-
árunum og jókst síðan eftir stríð. Þessi
iðnaður var sífellt að taka breytingum
og eflast en ég tel að það hafi verið
mikil bót fyrir frystiiðnaðinn þegar
sölusamtökin voru stofnuð og hófu að
hasla sér völl á erlendum mörkuðum.
Það skapaði ákveðið jafnvægi en síðan
þurfti að takast á við aflasveiflur og
verðsveiflur á mörkuðunum. Loks átti
svo sjávarútvegurinn við að stríða
mjög óstöðugt ástand í peningamál-
um vegna verðbólgunnar og þetta
ástand olli greininni miklum vand-
ræðum. Allt var þetta síst tii að hvetja
til stöðugleika," segir Már Elísson.
Matvara Hreinlœtisvörur Búsáhöld
Sérvara Rel\strarvönir Hreinsiefni
Sj ÓQÚíUt
H níf*
Áfyttin%U**wr
Vettlin&a
Svurttt*r
Oll rafmaZnstíeKt
Leitið réðlegginga okkar sérfrmðinga um
kaffimdlin og breinlmtismdtín
Verið velkomin á skrifstofu og í syningarsal
okkar að Óseyri 1 á Akureyri, 2. hœð.
...á sjó ocj landi!
ÓSEYRI 1 600 AKUREYRI Símar 463 0407 896 0485 Fax: 463 0375
38 Mm