Ægir - 01.09.1997, Page 80
UM SJÁV^g
90 ára
REVTIN6UR
Ný vinnslulína í
Sigurbjörgina
Frystitogarinn Sigurbjörg ÓF-1,
sem áður var gerður út af Magnúsi
Gamalíelssyni hf. í Ólafsfirði en er
nú í eigu Þormóðs Ramma-Sæbergs,
eftir sameiningu fyrirtækjanna, fór
nýverið til Póllands þar sem skipið
verður m.a. sandblásið og ýmsar aðr-
ar minni lagfæringar gerðar á því.
Ólafur Marteinsson, framkvæmda-
stjóri Þormóðs ramma - Sæbergs,
segir að eftir Póllandsferðina fari
skipið beint til Akra-ness þar sem
sett verður ný vinnslulína á
millidekkið frá Þorgeiri og Ellert hf.
Reiknað er með skipinu aftur á
veiðar seint í haust.
Sigurbjörgin var smíðuð árið 1979
hjá Slippstöðinni á Akureyri.
Olíutankur hreinsaður með liáþrýsti-
búnaði.
„Þetta er þess vegna fljótlegra en
með sandblæstrinum og sem dæmi
um hreinsun á olíutönkum þá hreins-
um við 1500 fermétra tank á 4-5 dög-
um. En auðvitað fara öll svona verk
eftir ástandinu þegar við komum að,"
segir Kristján.
Hann segist merkja töluverða við-
horfsbreytingu gagnvart málningu
skipa og að skilningur manna fyrir
undirvinnu sé að aukast.
„Undirvinnan getur skilað betri
endingu sem nemur nokkrum árum.
Það besta er að taka síðan skipin aftur
eftir nokkur ár og hreinsa bletti þar
sem þörf er á en gallinn er að yfirleitt
eru skipin orðin það svelt af málingar-
viðhaldi þegar við komum að verki að
hreinsunin verður viðameiri. Menn
hafa kannski frestað þessu viðhaldi
þegar verr hefur árað í útgerðinni en
þegar svo birtir yfir og meiri peningar
koma inn þá eru fjármunir lagðir lagt í
málninguna."
Hreyfst af tækninni í Danmörku
Kristján er fyrrverandi stýrimaður hjá
Eimskip en hugmyndin að fyrirtækinu
kviknaði þegar hann var með írafoss í
slipp í Danmörku árið 1990. Þá sá
hann lest skipsins hreinsaða með há-
þrýstiþvotti. „Mér fannst þetta alveg
bráðsniðugt og ákvað að taka mér árs-
frí frá sjónum til að reyna þetta hér
heima og í því fríi er ég enn. Skipa-
hreinsunin kom samt ekki að marki
inn fyrr en fyrir tveimur árum en hef-
ur hægt og bítandi verið að byggjast
upp."
Fimm menn starfa að jafnaði hjá
Blæstri hf.
80 ÆGIR