Ægir - 01.01.2000, Síða 6
LEIÐARI
Pétur Bjarnason,
framkvæmdastjóri
Fiskifélags íslands
Ægir
í breyttri mynd
Ægir er eitt af elstu tímaritum landsins. Þetta tölublað
er hið fyrsta í 93. árgangi blaðsins. Ægir á því langa og
viðburðaríka sögu. Ekki fer hjá því að tímarit breytist
í eina eða aðra veru á svo löngum tíma. Enda hefur svo
farið að efnisval og útlit Ægis hefur oft verið breytt í
útgáfusögu blaðsins.
Lesendur Ægis hafa tekið eftir þeim breytingum
sem gerðar hafa verið á efnistökum Ægis undanfarin
ár. Þurrar greinar með miklu talnaefni hafa að nokkru
leyti vikið fyrir greinum úr daglega lífinu, en þó hefur
þess verið gætt að greinar blaðsins séu fræðandi og
höfði til þeirra sem starfa í sjávarútvegi eða hafa á at-
vinnugreininni áhuga. Tölur um afla á einstökum fisk-
tegundum og skiptingu veiðinnar eftir landshlutum
hafa undanfarin ár fylgt blaðinu í sérblaði, Utvegstöl-
um.
Ægir hefur hins vegar verið tiltölulega íhaldssamt
blað að útliti. Brot blaðsins hefur verið
óbreytt um margra ára skeið og hefur það
því stungið í stúf við önnur tímarit, sem
hafa aðlagað sig að stöðluðum blaðsíðu-
stærðum, sem auglýsingar og umbrotsfor-
rit miða við.
Aðstandendur Ægis hafa nú ákveðið að
breyta til. Gerðar hafa verið tvær veiga-
miklar breytingar. I fyrsta lagi hefur
blaðsíðustærð ver-
ið færð í stærðina
A 4, sem er sú
blaðsíðustærð, sem
nú er oftast notuð.
I öðru lagi hefur
verið ákveðið að
fella niður útgáfu
Útvegstalna.
Ástæða þess er sú
að Fiskifélagið ann-
ast ekki lengur söfn-
un og úrvinnslu þeir-
ra talna sem að baki Ut-
vegstölum liggja. Fiski-
stofa og Hagstofa Islands
vinna nú þau verk sem Fiskifélagið vann áður á þessu
sviði og þær tölur sem í Utvegstölum hafa birst eru nú
aðgengilegar á heimasíðu Hagstofunnar. Því þykir
ekki lengur ástæða til þess að gefa þær sérstaklega út
með Ægi með þeim kostnaði sem því fylgir.
Við þessar breytingar eykst efni Ægis um nálega
þriðjung og blaðið verður einnig aðgengilegra fyrir
auglýsendur en áður. Það er því von aðstandenda
blaðsins að lesendur og auglýsendur taki þessum
breytingum vel.
Það er metnaðarfullt verkefni að gefa út vandað og
fjölbreytt tímarit á borð við Ægi, sem gefið er út 11
sinnum á ári. Til þess að svo megi verða þurfa bæði les-
endur blaðsins og auglýsendur að vera áhugasamir og
sýna blaðinu tryggð. Áskriftaverð Ægis hefur haldist
óbreytt undanfarin ár þrátt fyrir aukin kostnað við út-
gáfuna. Ætlunin er að halda áskriftaverði óbreyttu um
sinn þótt ljóst sé að einhver kostnaðarauki felist í þeim
breytingum sem hafa hér verið kynntar. Ægir mun því
áfram verða ódýr og öflugur miðill fyrir þá sem fylgj-
ast vilja með í sjávarútvegi hérlendis sem erlendis.
Byggðakvo
kallar á bras
Björgólfur Jóhannsso
forstjóri Sildarvinnslunn