Ægir - 01.01.2000, Qupperneq 9
www.rfisk.is
ÆGIR
Þau stýra Ægi
Jóhann Ólafur
Halldórsson,
ritstjóri
Jóhann Ólafur stýrir daglegri ritstjórn Ægis frá út-
gáfu- og kynningarfyrirtæki sínu, Áformum ehf., á Ak-
ureyri. Meginþungi efnisvinnslu i Ægi er þar en síðan
nýtur blaðið starfskrafta fólks vitt og breitt um land-
ið, bæði fólks sem vinnur efni og annast Ijósmyndun.
Á Akureyri fer einnig fram samsetning blaðsins og
þaóan er blaðið svo sent fullunnið um símalinu til
prentunar hjá prentsmiðjunni Steindórsprent-Guten-
berg í Reykjavik.
Sími ritstjórnar er 461-1541 og tölvupóstfang:
j.olafur@simnet.is
Inga er auglýsingastjóri Ægis. Samskipti við stóran
og sífellt stækkandi hóp augiýsenda er á hennar herð-
um, bæði vegna auglýsinga í Ægi, sem og vegna aug-
lýsinga i Sjómannaalmanakið. Saman mynda þessir
miðlar sterkan auglýsingavettvang og vió fullyrðum að
einn af hagstæðari möguleikunum á auglýsingamark-
aðnum i sjávarútvegi er heildarsamningur um auglýs-
ingar í Ægi og Sjómannaalmankinu.
Síminn hjá Ingu er 568-4413.
Inga
Ágústsdóttir,
auglýsinga-
stjóri
Pétur
Bjarnason,
ritstjóri
Pétur er bæði ritstjóri Ægis og framkvæmdastjóri
Fiskifélags íslands. Dótturfyrirtæki félagsins, Fiskifé-
lagsútgáfan ehf., er formlegur útgefandi Ægis, Sjó-
mannaalmanaks Fiskifélags íslands og Kvótabókarinn-
ar þannig aó stór hluti daglegra verkefna hjá FÍ snýr
að útgáfumálum, með einum eða öðrum hætti. Skrif-
stofur Fiskifélags íslands eru í Skipholti 17 í Reykjavík
og þar er umsjón með reikningshaldi vegna útgáfumál-
anna, áskrifendaskrá Ægis og fleiru sem útgáfuna
varðar.
Útgáfu- og kynningarfyrirtækið Athygli ehf. i
Reykjavík er samstarfsaðili Fiskifélags íslands í út-
gáfumátum og er Valþór Hlöðversson, framkvæmda-
stjóri Athygli og annar aðaleigandi þess fyrirtækis,
verkefnisstjóri útgáfumálanna. Til þeirra heyrir hin
vióamikla útgáfa Sjómannaalmanaks Fiskifélags ís-
lands sem og útgáfa Ægis, en dagleg vinnsla Ægis fer
þó að mestu fram á Akureyri, eins og sjá má hér ann-
ars staóar i opnunni. .....
Valþor
Hlöðversson,
verkefnisstjóri
Ráðgjöf og
þjónusta
Rf býður fyrirtækjum í matvælaiðnaði ráðgjöf og þjónustumælingar.
Markmið þjónustunnar er að stuðla að meiri gæðum og aukinni hagræðingu í rekstri.
Rf veitir ráðgjöf í
• vöktun gæðakerfa
• bættum vinnsluferlum
• hreinlæti og þrifum
Rf framkvæmir
• efnamælingar
• örverumælingar
• snefilefnamælingar
Faggilding er orðin stór þáttur í auknum kröfum erlendra viðskiptavina, auk þess
að vera bundin í reglugerðum. Rf hefur hlotið slíka faggildinu á sínum mælingum.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma; 562 0240 eða sendið
tölvupóst á netfangið; info@rfisk.is
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
Skúlagötu 4, Pósthólf 1405, 121 Reykjavík
Sími: 562 0240 ( Fax: 562 0740 ( Netfang: info@rfisk.is