Ægir - 01.01.2000, Page 20
SÍF HF
Fiskréttaverksmiðja SÍF i Bandarikjunum.
Dótturfyrirtæki SÍF i Kanada, sem verið hefur í
mikiLLi sókn á undanförnum árum.
athygli innkaupastjóra þes-
sara stóru keðja en þegar ísinn
er brotinn og tekist hefur að
koma á viðskiptum þá eru
viðskiptin stöðug, svo lengi
sem við stöndum okkur í
gæðum og áreiðanleika,"
segir Friðrik og vfkur nú að
því atriði sem margir telja
kannski hvað mikilvægast,
þ.e. er verðið.
„Verðið er vissulega mikil-
vægt en verð á samkeppnis-
markaði skapast af mörgum
þáttum. Einstök fyrirtæki
ráða kannski ekki miklu um
það en árangur fyrirtækjanna
ræðst af því að þau séu
áreiðanlegir viðskiptavinir og
eftirsóttir. Það er síðan innan
sölufyrirtækjanna sem gæta
þarf þess að stýra kostnaði og
öðrum framleiðsluþáttum á
réttan hátt til að eftir standi
ásættanlegur hagnaður að
afloknum viðskiptum."
Dótturfyrirtæki SÍF í Frakklandi. Þar i landi mun
verða lögð megináhersla á aó nálgast neytandann
og skapa SÍF eigið vörumerki á netyendavöru-
markaði.
Óplægður akur
á Bandaríkjamarkaði
Skýringuna á því að mikið er
horft til starfsins hjá SIF í
Frakklandi er sú að þar er um
fjölbreyttast vöruúrval að
ræða á sama markaðssvæðinu
og því hentar sá markaður
best til að renna stoðum
undir eigið merki SIF á neyt-
endavöru. Friðrik segir að
reynslan frá Frakklandi komi
til með að nýtast á öðrum
mörkuðum SIF í heiminum.
„Bandaríkjamarkaður er kannski sá akur sem við
teljum að hægt sé að plægja mest til árangurs en þar
er vörumerkið „Samband" mjög þekkt og síðan hefur
SIF þegar náð góðum árangri með saltfiskinn, sér í
lagi á New-York svæðinu. Tíminn verður að leiða í
ljós hvernig okkur gengur vestan hafs en við reiknum
ekki árangur í Bandaríkjunum sérstaklega inn í okkar
áætlanir í byrjun. Þau atriði sem við horfum sérstak-
lega til vegna sameiningarinnar eru breiðara vöruúr-
val, samband við fleiri viðskiptavini, sterkara fyrirtæ-
ki með aukna áherslu á vöruþróun og markaðsstarf og
síðan samlegðaráhrifin í starfseminni í heild,“ segir
Friðrik.
Umhverfismálin skapa tækifæri
Umhverfismálin ber æ oftar á góma í sjávarútvegi og
þau eru tengd sölu á afurðum Islendinga erlendis og
gjarnan sagt að viðskiptavinir okkar spyrji í vaxandi
mæli um þennan þátt í íslenskum sjávarútvegi.
Friðrik segir ljóst að umhverfismál séu mismikið
áhersluefni á einstökum markaðssvæðum. Minna sé
spurt um þennan þátt á saltfiskmörkuðum en á
mörkuðum fyrir frysta fiskinn.
„Mér finnst að umhverfisumræðan komi dálítið í
bylgjum og líkist tískusveiflum. Hvað SIF varðar þá
munum við líta á umhverfismálin og þá umræðu sem
tækifæri frekar en ógnun en umhverfismálin eru einn
af þeim þáttum sem vinna þarf að og taka tillit til í
sölustarfi á fiskafurðum í dag,“ segir Friðrik.
Umbrotaárið 2000
Aðspurður um áætlanir um rekstrarafkomu SIF á
árinu 2000 segir Friðrik öllum ljóst að það verði
mikið tímamótaár í starfi fyrirtækisins, árið sem sam-
runi SIF og IS verði útfærður.
„Við munum nota árið 2000 til að tryggja okkar
markaðsstöðu og almenna stöðu okkar á þeim
viðkvæmu mörkuðum sem við erum að vinna á. Við
reynum að sjálfsögðu að skila góðri afkomu en lítum
frekar til þess að á árinu 2001 þá getum við snúið
kröftum okkar að því að ná fram góðum hagnaði og
sýna þannig í verki fram á þann árangur af
sameiningunni sem við teljum okkur sjá fyrir á þess-
ari stundu," segir Friðrik Pálsson, stjórnarformaður
SÍF.
SIE
Sameiningin:
Félögin sameinuð undir nafninu SÍF hf.
á grundvelli Laga um hLutafélög.
Samruninn miðast við 1. júli 1999
HeiLdarhlutafé félagsins verður 1.500
miLljónir króna
Skiptihlutfall eftir samrunann:
ÍS 29%
SÍF 71%
Eignaraðild SÍF eftir samruna: VátryggingaféLag ísLands hf. 2,0%
23 hLuthafar með meira en 17» hLutafé Tryggingamiðstöðin hf. 1,8%
Enginn með meira en 8,07o hLut SnæfeLL hf. / KEA 1,8%
Hátt á annaó þúsund hluthafar Lífeyrissjóður NorðurLands 1,7%
Nesskip hf. 1,6%
Lífeyrissjóður sjómanna 1,5%
Stærstu hluthafar: Samvinnusjóður ísLands hf. 1,4%
Burðarás hf. 7,9% Fiskiðja Sauðárkróks -
FramLeiðendur ehf. 6,77o KaupféLag Skagfirðinga 1,4%
Búnaðarbanki ísLands 3,77o VÍB - Sjóður 6 1,4%
MundiLL hf. 3,3% AuóLind hf. htutabréfasjóður 1,3%
Lífeyrissjóður VR 3,0% Fiskanes hf. 1,3%
FBA hf. 2,8% Úrvalsbréf 1,1%
SamvinnuLífeyrissjóðurinn 2,3% KASK svf. 1,1%
Fjárfestingasjóður Lífeyrissjóður AusturLands 1,1%
Búnaðarbanka ísLands 2,1% íslenski fjársjóðurinn hf. 1,0%
20