Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.2000, Side 33

Ægir - 01.01.2000, Side 33
UMRÆÐAN stjórnarskrár uppfyllt. Að fullyrða að hér verði hrun ef mismunun núverandi kvótakerfis væri af- numin er algjörlega úr lausu lofti gripið. Viðhald landsbyggðar Aðrar norrænar þjóðir hafa gert margt til þess að viðhalda byggð og gera það eftirsóknarvert fyrir fólk að búa úti á landsbyggðinni. Norðmenn eru fiskveiðiþjóð og með dreifða byggð. Þeir setja óhindrað reglur til viðhalds byggð í norðurhluta landsins. Flestir vita núorðið um mikla byggðastyrki innan ESB. Allar þær aðgerðir benda til þess að lýð- ræðisríki sem búið hafa við þétt- býlismyndun mun lengur en Is- lendingar telji óhikað að verð- mæti þjóðar felist í því að við- halda byggð sem víðast. Eyðibyggðastefna sem hér er rekin með því að taka upp sölu kvótans er að mínu viti glæpur sem vegur að framtíðarhagsmun- um og menningu okkar. Snúum við sem fyrst Berum gæfu til þess að snúa við sem fyrst frá núverandi eyði- byggðastefnu. Viðurkennum rétt fólksins til sjósóknar og fiskveiða. Sá réttur er enda tilkominn af lan- gri hefð og þorpin eru staðsett við ströndina vegna þess að þaðan var gott að sækja til nálægra fiski- miða. I hvaða fiskveiðistjórnar- kerfi sem er eiga útgerðarmenn, smáir sem stórir, aðeins að hafa nýtingarrétt en aldrei sölu- og leigurétt á óveiddum fiski í sjón- um. Gefum strandveiðiflotanum eins mikið sjósóknarfrelsi og mögulegt er innan þess stjórn- kerfis sem við notum hverju sinni. Höfum eins fáar botnfisk- tegundir í kvóta hvers útgerðar- flokks eins og mögulegt er, vegna þess að einfalt kerfi í framkvæmd er gott stjórnkerfi sem kallar á lít- inn eftirlitsiðnað. Tryggjum að við breytingar og niðurfellingu núverandi kvóta- braskkerfis haldi núverandi út- gerðarmenn og fiskiskipaeigend- ur rétti til þess að stunda fiskveið- ar sem byggjast á heimild til nýt- ingar um leið og sölu- og leigu- réttur þeirra á óveiddum fiski verður afnuminn. Tryggjum við- snúning með jafnræði og atvinnu- frelsi að leiðarljósi um leið og við sýnum sægreifunum umburðar- lyndi, sanngirni og bjóðum að- lögunartíma fyrir þá til breyttra og betri hátta. Þeir verða sjálfir að fást við sín fráhvarfseinkenni, enda góðu vanir. Góðar hugmyndir eru til í mismunandi útfærslum Pósthólf 50 • 620 Dalvík • Sími: 460 5000 • Fax: 460 5001 • Tölvupóstur: saeplast@saeplast.is • Heimasíða: www.saeplast.is 33

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.