Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.01.2000, Qupperneq 34

Ægir - 01.01.2000, Qupperneq 34
VAKI-DNG HF -Ijósm. Sverrir Jónsson Hermann Kristjánsson, framkvæmdastjóri Vaka-DNG (t.v.) og Jóhann Bjarnason, sölustjóri. Vaki-DNG hf. hefur sitt fyrsta starfsár: Ætlum að styrkja stöðu okkar á erlendum mörkuðum - segir Hermann Kristjánsson, framkvæmdastjóri Ein af athyglisverðustu fyrirtækjasameiningum á síðasta ári í ís- lenskum sjávarútvegi var samruni Vaka - fiskeldiskerfa hf. og DNG-Sjóvéla hf. í hinu nýja fyrirtæki, Vaka-DNG hf., mætist framleiðsla á búnaði fyrir bæðl fiskveiðar og fiskeldi, og á öll starf- semi fyrirtækjanna það sameiginlegt að í vöruþróuninni er stuðst við nútímatækni til stýringar á búnaði, þ.e. tölvutæknina. Á árinu 1999 veltu fyrirtækin sameiginlega um 400 milljónum króna og sköpuðust sjö af hverjum tíu tekjukrónum fyrirtækisins af sölu á erlendum mörkuðum, þannig að sjá má af því að Vaki-DNG hf. er öflugt útflutningsfyrirtæki í sjávarútveginum. Fyrirtækið er skráð á Vaxtarlista Verð- bréfaþings og eru hluthafar Vaka-DNG hf. alls um 125 talsins og er Hampiðjan stærsti eigandi með um 26% hlutafjár. Aðrir stærri eigendur eru Þróunarféiag Islands og hlutabréfasjóðir en til viðbótar starfsmenn og aðrir einstaklingar. Sjávarútvegur og fiskeldi mætast Vaki-fiskeldiskerfi hf. byggði áður á tveimur megin starfssviðum. Annars veg- ar á þróun og sölu á tæknibúnaði fyrir fiskeldi, þ.e. lífmassamælum og teljur- um. Á þessu sviði hefur fyrirtækið haft nokkra sérstöðu og boðið tæknilausnir á tímafrekum störfum : fiskeldinu. Stærstu markaðir fyrir þessar framleiðsluvörur hafa verið Noregur og Skotland. Síðast- liðin tvö ár hefur fyrirtækið starfrækt dótturfyrirtæki í báðum löndunum sem þjónustað hafa fiskeldisfyrirtæki þar og sinnt sölumálum en annars hefur verið byggt á umboðsmannakerfi vítt og breitt um heiminn. Hitt megin starfsvið Vaka-fiskeldis- kerfa hf. var þróun og sala á stýringar- búnaði fyrir veiðarfæri, þ.e. kerfi sem bera vörumerkin LineTec, SeineTec og TrawlTec, og er þar um að ræða átaks- mælibúnað og stýrikerfi fyrir línu, drag- nót og troll ásamt nýrri gerð aflanema. Þennan búnað hefur fyrirtækið selt á markaði hérlendis og erlendis en í fram- leiðslu hans hefur mikið verið stuðst við iðnfyrirtæki sem undirverktaka.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.