Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.2000, Side 44

Ægir - 01.01.2000, Side 44
FISKVEIÐAR samráð um stjórnun á veiðunum en texti sáttmálans er hins vegar óljós þegar kemur að útfærslu á því hvernig þessu samráði skuli háttað. Uthafsveiðisáttmáli Sam- einuðu þjóðanna, sem skrifað var undir árið 1995, var tilraun til að bæta úr þessu. Samkvæmt sátt- málanum er aðgangur til að veiða á alþjóðlegum hafsvæðum áfram öllum þjóðum frjáls , en frelsinu fylgir sú ábyrgð að fylgja þeim reglum sem þær alþjóðastofnanir, sem hafa umsjón með fiskveiði- stjórn á viðkomandi svæði, setja um veiðarnar. Allar þær þjóðir sem hafi hagsmuna að gæta af veiðunum eiga hins vegar rétt á að verða aðilar að viðkomandi svæð- isstofnun. I sáttmálanum er jafn- framt kveðið á um að svæðisstofn- anir skulu hafa varúðarregluna til hliðsjónar við ákvarðanatöku og einnig að frjáls félagasamtök eigi rétt á að senda áheyrnarfulltrúa á fundi svæðisstofnananna. Uthafsveiðisáttmálinn skapar mikilvægan ramma fyrir starfsemi svæðisstofnananna sem hafa fisk- veiðistjórnun á alþjóðlegum haf- svæðum á sinni könnu. Til að framfylgja skilyrðum hins nýja sáttmála þurfa margar þessara stofnanna hins vegar að endur- skoða vinnuferli sitt og aðlaga sig breyttum kröfum. Sú vinna hefur farið hægt af stað og ekki hjálpar til að þrátt fyrir að rúm fjögur ár séu liðin frá undirskrift út- hafsveiðisáttmálans er hann ekki enn genginn í gildi. I nóvember 1999 höfðu 24 ríki samþykkt samninginn en alls þarf samþykki 30 ríkja til að samningurinn gangi í gildi. Mistök svæðisstofnananna í Atlantshafi og Suðurhöfum við að ná fram markmiðum sínum um sjálfbæra nýtingu bláuggans ber ekki að túlka sem svo að alþjóða- samningar sem þessir séu gagn- lausir. Þeir gefa hins vegar skýra vísbendingu um að samningurinn sem slíkur, sé aðeins fyrsta skref- ið. Til að ná raunveruiegum ár- angri þarf hugur að fylgja máli. Kynna þarf samninginn og vinna honum brautargengi. Alþjóðlegar fiskveiðistofnanir hafa oft verið gagnrýndar fyrir að starfa fyrir lokuðum dyrum og að ákvarðnir stjórnist af hagsmunum fárra. Til að koma í veg fyrir þetta má færa rök fyrir því að gagnsærra ákvörðunartökuferli væri til bóta. Þá má einnig hugsa sér að fleiri ættu þess kost að hafa áhrif á ákvarðanatöku, t.d. með því að gefa bæði hagsmunaðilum í fisk- veiðum og frjálsum félagasamtök- um, s.s. umhverfisverndarsamtök- um, rétt til að koma með ábend- ingar. Með þessum hætti væri ferlið vissulega flóknara, en hins vegar má leiða að því líkum að meiri sátt næðist um slíka samn- inga og að sjómenn væru líklegri til að fylgja þeim reglum sem þeir hafa sjálfir tekið þátt í að móta. Með öðrum orðum þá eru það ekki einungis efnisatriði samn- inga sem hafa áhrif á hve árang- ursríkir þeir eru sem tæki til að ná fram markmiðum sjálfbærrar nýt- ingar, heldur skiptir samninga- ferlið, þ.e.a.s. sú leið sem farin er til að ná samkomulagi, ekki síður máli. t G A R M £ s r AÐALSTRÆTI 6-8 • 101 REYKJAVÍK SÍMI 51 5 2000 - www.tmhf.is V Á R E V H

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.