Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1918, Page 39

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1918, Page 39
37 Yfirleitt hygg jeg að megi með sanni segja um alt vis- indastarf próf. Ólsens og viðfangsefni þau, er hann hefir haft með höndum, að hann hafi ýmist ráðið fram úr þeim að fullu eða þó að minsta kosti greilt svo úr þeim með skýringum sínum og lagfæringum, að vjer sjeum ólíkt nær fullri úrlausn og niðurstöðu eftir en áður, og er þvi full á- stæða til að þakka honum mikið og vel unnið slarf í þarfir visindanna og í þágu lands og þjóðar. Þá er nú siðast að geta þess, er hann sjerstaklega hefir unnið í þarfir háskóla vors. Nú i 12 kenslumisseri samfleylt fram til síðasta hausts, er hann fjekk undanþágu frá kenslu- skyldu sakir heilsubilunar, hefir hann haldið fyrirlestra um bókmentasögu íslendinga og jafnframt skýrt og farið yfir Eddnkvœðin. Bókmentasögu vora hefir hann nú i þessum fyrirlestrum sínum rakið frá upphafi og alt sögutimabilið svo að segja á enda, og mun margur hlakka til að lesa það rit, er það kemur fyrir almennings sjónir. En Edduskýring- um hans mörgum er þegar viðbrugðið af lærisveinum hans og öðrum, er hafa hafl færi á að kynnast þeim (sjá Arkiv for nord. Filologi). Þá er háskóli vor var settur á stofn, vorum vjer svo lán- samir að öðlast próf. ólsen fyrir fyrsta kennara lians í ísl. fræðurn. Lán megum vjer telja þetta, sökum þess, að próf. B. M. Ólsen nýtur að maklegleikum álits og heiðurs viða um lönd sem einn hinn allra fremsti meðal núlifandi ís- lenskufræðinga, enda hefir hann hlotið margvislega viður- kenningu fyrir. En um hina fágætu og ágætu kennarahæfi- leika próf. B. M. Ólsens getið þjer hinir mörgu borið, sem hjer eruð viðstaddir og allílestir hafið verið lærisveinar hans. Oss samkennurum hans hjer við háskólann er einkar- ljúft að votta, að samvinnan milli hans og vor hefir verið Ijúf og þýð, og á hinn bóginn viljum vjer ekki dyljast þess, að vjer höfum miklast af því að mega telja hann í vorum hóp. Oft höfum vjer kent bjarnarylsins í samvistunum við hann, og þess megum vjer minnast, að fáir hafa kunnað að

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.