Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1918, Blaðsíða 41
39
úr öðrum háskólum í. Og vjer eigum að hafa þann metnað,
að skilja sjálflr best og skýra vora ágætu tungu og alt, sem
á lienni hefir verið skráð, að fornu og nýju. Vjer eigum að
kosta kapps um, að Háskóli íslands verði hvervetna talinn
æðstur dómstóll í íslenskum fræðum og viðurkenning hans
hæstur heiður í þeim efnum.
Þelta hafði heimspekisdeildin fyrir augum, er hún sam-
þykti að taka upp þá doktorsnafnbót, er jeg áður greindi.
En þá var hitt jafn-augljóst, að prófessor Björn Magnússon
Ölsen er sá maður, er allra hluta vegna liefir margsinnis til
þess heiðurstitils unnið, eins og rektor háskólans hefir sýnt
fram á í ræðu sinni. Deildinni er það því hæði gleði og
sómi, að próf. Björn Magnússon Ólsen verði fyrsti doktor
háskólans í íslenskum fræðum. Með þvi fær hún eigi að
eins voltað honum virðingu sína og þökk fyrir hið ágæta
starf hans í þarfir íslenskra fræða og Háskóla íslands, lield-
ur er og nafn hans innsigli þess, að háskóli vor setur
markið hátt, og að þessi nafnbót er ætluð afreksmönnum
einum.
Með þessum formála vil jeg í nafni heimspekisdeildar Há-
skóla íslands biðja rektor háskólans að afhenda próf. Birni
Magnússyni Ólsen doktorsbrjef það, er deildin hefir samið
og samþykt.
Þá stóð upp rektor háskólans og mælti úr öndvegi:
Saiukvæiut því valdi, sem mjer er gefið sem Rektor Há-
skóla íslands, og sanikvæiut tiliuælum forseta heimspekis-
deildar, lýsi jeg hjer með yfir því í heyranda liljóði, að
prófessor, dr. pliil.
líjtii'n Magnússon Olsen
R. af Dbr. og Dbrm.
er rjett kjörinn
doetor litterarum islandicarum
við heimspekisdeild Háskóla íslands.
Petta sje góðu lieilli gert og vitað!