Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1920, Page 5
I. Stjórn háskólans.
Rektor háskólans var þetta háskólaár prófessor Sigurður
P. Sívertsen, kosinn til þess starfs á almennum kennarafundi
17. júní 1919.
Deildaríorsetar voru þessir:
Prófessor Haraldur Níelsson i guðfræðisdeild.
—»— Guðmundur Hannesson í læknadeild.
—»— Ólafur Lárusson i lagadeild og
—»— dr. phil. Sigurður Nordal i heimspekisdeild.
Áttu þessir deildarforsetar sæti i háskólaráðinu undir for-
sæti rektors.
II. Skrásetning- stúdenta.
Skrásetning nj'rra háskólaborgara fór fram laugardaginn
4. október kl. 1 e. h., að viðstöddum flestum kennurum
háskólans og stúdentum. Stóð rektor háskólans fyrir athöfn-
inni og hjelt ræðu þá, sem hjer fer á eflir:
Háttvirta samkoma. Kæru samkennarar og stúdentar!
Þegar vjer erum hjer samankomnir á nýbyrjuðu háskóla-
ári til þess að bjóða nýja háskólaborgara velkomna í náms-
mannasveitina, minnumst vjer fyrst með virðingu og sam-
úðarhug látins kennara, Jóns prófessors Kristjánssonar, sem
vjer urðum ungum, á besta aldursskeiði, á bak að sjá á