Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1920, Blaðsíða 6
4
liðnu háskólaári. í hans sæti er kominn Ólafur prófessor
Lárusson, og bjóðum vjer hann á þessum stað velkominn
sem fastan kennara háskóla vors og óskum honum allra
heilla og visindaframa. —
Þá getur hugur vor ekki látið hjálíða að nema staðar við
og minnast hinna stórfenglegu breytinga og byltingatíma,
sem vjer lifum á.
Viðburðir hafa gerst, og eru sífelt að gerast þessi árin,
sem veraldarsagan mun telja hina mikilfenglegustu og skrá
stóru letri í fræðibækur sinar. Veit enginn af oss enn til
hvers þeir stórviðburðir muni leiða. Hugsa sumir sennilega
likt um þá viðburði og Guðmundur skáld Guðmundsson
lætur Gunnar á Hlíðarenda kveða i hauginum:
»Hugurinn snýst um hefð og völd,
hjakkað i sporin,
hjakkað i drauga-sporin«.
Aðrir aftur á móti vona, að viðburðir siðustu ára megi
reynast fæðingarhríðir nýrri og hetri tíma. Og óhætt má full-
yrða að fjöldi af þroskuðuslu og bestu mönnum þjóðanna
vinnur að því, hver í sínu landi og í sínum verkahring, að
svo megi verða í raun og veru, — að birta megi i heiminum
aftur eftir hörmunganóttina löngu og heiminum í einhverju
þoka fram á leið, en ekki verði bjakkað i sömu sporin, án
framfara og þróunar.
Viðburðir hafa líka gerst á síðastliðnu háskólaári, sem
skráðir verða stóru letri í sögu lands vors, þar sem land
vort er orðið fullvalda ríki og þjóð vor nú opinberlega af
öllum viðurkend fimta sjálfstæða þjóðin á Norðurlöndum.
í sambandi við þá viðburði hefir háskóli vor eignast stóran
og merkilegan sjóð til þess að efla andlegt samband Islands
við sambandsland vort, til stuðnings íslenskri vísindastarf-
semi og til styrktar islenskum námsmönnum. Er stofnskrá
fyrir þennan Sáttmálasjóð Háskóla íslands staðfest 29. júní
þ. á. og gert ráð fyrir að sjóðurinn taki til starfa á þessu
háskólaári. Hjrgg jeg að óhætt niuni að fullyrða, að sjóð-
stofnun þessa megi telja stórviðburð í sögu. vors litla og