Árbók Háskóla Íslands

Ukioqatigiit

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1920, Qupperneq 8

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1920, Qupperneq 8
6 Og er ekki eíns og viðburðírnir komi til hvers einstaks stúdents og segi sjerstaklega við hann: Fyrst þú ert svo vel settur, að vera í tölu þeirra manna, sem'heíir hlotnast það hlutskifti að stunda nám við æðstu mentastofnun lands vors, ætlarðu þá ekki að stefna hált á námstíma þinum og gera alt, sem í þínu valdi stendur, til þess að geta talist til úr- valsmanna þeirra, sem hefja eiga land og þjóð til æðri menningar, þroska og vellíðunar á komandi fullveldistíma? Finst nokkrum ungum stúdent sjer framtíð lands vors óviðkomandi? En er þá nokkur, sem ekki heyri til sín tal- að: Þú ert maðurinn, sem á þínu svæði átt að lyfta undir Grettistakið, sem ættland vort, Fjallkonan, er með aðstoð sona sinna og dætra að koma fyrir á sínum slað. Erfiðara virðist vist flestum að skilja raddir heimsviðburð- anna. Þeir eru svo margvíslegir og sundurleitir, svo að segja má að þeir tali ótal tungum. I3ó mun eitt vera sameiginlegt ílestum þeim þjóðum nútimans, er vjer höfum hest kynni af og þekkjum mest til. I’ær hafa verið og eru flestar enn í aftaka ofviðri uppi á nokkurskonar Kaldadal, þar sem haldið hefir verið og haldið er enn próf karlmensku þeirra. Eftir langa hylinn hefir loks verið reynt að halda til bygða, en á þeirri leið hefir hvert jelið skollið á eftir annað, og enginn veit enn, hvenær hver þjóðin fyrir sig kemst niður i bygð rósemi og friðar. Hafi þessi Kaldadalsganga þjóðanna getað kent oss nokkuð, þá er það sá sannleikur, að vilið og þekkingin sje ekki nóg, ef því sje ekki beilt til góðs og af göfugum hvötum. Þetta er sannleikur, sem á erindi til allra námsmanna vorra, eldri og yngri, ekki sist til þeirra, sem ætla sjer að verða forgöngumenn þjóðar vorrar i framtíðinni. Slíkir menn þarfnast þekkingar, sem er djúpsæ og víð- læk. Til þess eru þeir að klifa hinn hratta skólaveg, uns þeir hafa lokið námi við æðstu mentastofnun lands vors, og á þann hátt öðlast, auk þeirrar almennu þekkingar, sem talin er nauðsynleg hverjum lærðum nútímamanni, sem víð- tækasta þekkingu liver í sinni visindagrein.

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.