Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1920, Page 29
27
2. Samanburðarmálfrœði norrœnnar tungu, einn fyrirlest-
ur á viku bæði misserin.
3. Æfingar í frumnorrœnu, ein stund á viku bæði misserin.
4. Lestur Ijóða Schillers, ein stund á viku fyrra misserið.
5. Æfingar í þýsku, 1—2 stundir á viku síðara misserið.
VII. Próí.
Guðíræðisdeildiu.
Embœltispróf í guðfrœði.
í lok fyrra misseris gengu 6 stúdentar undir embættispróf
og stóðust það allir.
Skriflega prófið fór fram dagana 28. til 31. jan., en munn-
lega prófið 9.—13. febr.
Kandídatarnir luku allir prófi 13. febr. og verkefni við
skrifl. prófið voru:
I. í gamlatestamentisíræðum:
Sálm. 24.
II. 1 nýjatestamentisíræðum:
Hverjar skoðanir hefir síðgyðingdómurinn á faðerni
guðs og hver var skoðun Jesú á því og hverjir eru
guðs börn samkv. kenningu hans?
III. í samstæðilegri guðfræði:
Hvernig lítur elari lútersk trúfræði og nýrri guðfræði á
guðs orð: aðalefni þess og einkenni, hvar það sje að
finna og í hverri merkingu það megi nefnast náðarmeðal?
IV. í kirkjusögu:
Bændauppreisnin á Þýskalandi 1524—1525, afstaða Lúters
lil hennar og afleiðingar hennar fyrir siðbótarhreyfinguna.
Prjedikunartexlarnir, sem tilkyntir höfðu verið kandí-
dötunum V2 mánuði fyrir skriflega prófið, voru þessir:
Mark. 14, 37.-38. (Magnús Guðmundsson).