Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1920, Qupperneq 39
37
13. júní 1919, varði ritgerð sína, Jón Arason, til þess að hljóta
fyrir hana doktorsnafnbót í heimspekilegum fræðum.
Forseti deildarinnar hafði af deildinni verið skipaður ann-
ar andmælandi ex officio, og stýrði því fyrverandi forseti,
prófessor dr. Guðmundur Finnbogason, athöfninni í hans
stað.
Andmælendur ex officio voru þeir prófessorarnir dr. Jón
J. Aðils og dr. Sigurður Nordal, en auk þeirra andmælti
dócent Magnús Jónsson ex auditorio. Doktorsefni var gefinn
timi til þess að svara eftir að hver andmælandi hafði lokið
ræðu sinni.
Vörnin var tekin gild og doktorsskjal afhent.
IX. Aístaða liáskólans lit á viö.
Háskólinn i Rostock sendi háskólanum boðsbrjef til 500
ára afmælisliátíðar sinnar 12. nóv. 1919. Rektor var falið
að senda háskólanum heillaóskaskeyti og skýra brjeflega frá
orsökum þess, að Háskóli Islands gat ekki þegið boðið.
Þá var rektor einnig falið að svara boðsbrjefi frá háskólanum
i Cluj i Rúmeníu, dags. 15. des., til stofnhátíðar þess háskóla.
Studenterforeningen í Kaupmannahöfn hauð háskólanum
að senda fulltrúa á aldarafmælishátið fjelagsins 15.—17. júlí
1920. Prófessor Sigurði Nordal var falið að mæta á hátíð
þessari sem fulltrúi liáskólans. Auk þess var fjelaginu sent
rúnakefli, er gert hafði Ríkarður Jónsson, en á keflið voru
ristar tvær vísur með fornyrðislagi. Afhenti prófessor Sig-
urður Nordal keflið með stuttri ræðu við hina opinberu
móttökuathöfn 16. júlí.
Dagana 22.—21. júlí var haldinn i Kaupmannahöfn fund-
ur stúdentafulltrúa frá hlutlausum þjóðum, til þess að ræða