Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1945, Blaðsíða 11
9
námsmenn að láta lífið svo þúsundum skiptir, fjöldi þeirra
særist, þeir verða að þola lemstranir, andlegar og líkamlegar
þjáningar, sem munu móta allt líf þeirra. íslenzkir stúdentar
geta unnið friðsamleg störf i ró og næði; ríkissjóður kostar
alla kennslu ykkar, frá þvi er þið komið í menntaskóla þar
til þið verðið kandidatar, þið fáið allríflegan náms- og húsa-
leigustyrk, stjórn og landslýður liefur byggt góð og hagkvæm
iiús, þar sem margir ykkar fá vistarveru fyrir sanngjarna,
lága leigu. Þið megið því að þessu leyti vel una hag ykkar.
Þið eruð skyldugir að endurgjalda þessi miklu hlunnindi
með því að leggja mikið að ykkur við námið, svo að þið
verðið dugandi menn, færir um að vinnna trúlega fyrir ætt-
jörð okkar.
Iðni og ástundunarsemi á námsárum er fyrir öllu, slæp-
ingsháltur, óregla, næturvökur, drykkjuskapur og fjárhættu-
spil tefur allt frá gagnlegum s'törfum og hefur siðspillandi
áhrif á ykkur. Háskólinn setur ykkur ákveðnar reglur, sem
fylgja slcal, meðan þið stundið hér nám. Ég bið þá nýskráðu
stúdenta, sem hér eru viðstaddir, að koma hingað til mín
og staðfesta með handabandi að hlýða setlum reglum.
III. GERÐIR IIÁSKÓLARÁÐS
Háskólalög. Samkvæmt ósk liáskólaráðs var flutt á Alþingi
og afgreitl sem lög frumvarp um breyting á lögum um
Háskóla íslands og um breyting á og viðauka við lög um laun
háskólakennara. I þessum lögum er verkfræðisdeild lögfest,
og ákveðin tala fastra kennara við hana, lögfest dósents-
embætti í viðskiptafræðum og stofnuð dósentsemhætti í bók-
menntum og sögu. Lögin eru prentuð á hls. 92.
Með lögum nr. 9, 24. jan. 1945, var stofnað prófessors-
embætti í heilbrigðisfræði í læknadeild. Lögin eru prentuð
á hls. 93.
Með lögum nr. 31, 12. fehr. 1945, var stofnað nýtt dósents-
embætti í guðfræðisdeild. Lögin eru prentuð á hls. 93.