Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1945, Blaðsíða 102
100
nám. Árekstur hluta. Áshögg og höggmiSja. Afstæð hreyfing með
sérstöku tilliti til jarðsnúningsins. Snúningur hlutar um fastan punkt.
Gyróskóp. Frjáls hreyfing hlutar.
Fjöldi kennslustunda um 230.
BurðarþoIsfrœSi. Grafisk meðferð krafta í fleti. Ákvörðun undir-
stöðuviðnáma og þverkrafta fyrir einfalda flata burðarhluta og burð-
argrindur. Þan- og styrktareiginleikar prismalagaðra hluta, er verða
fyrir togi eða þrýsting, vindu eða beygju. Frumatriði um gerð og út-
reikning mannvirkja úr járni. í samhandi við kennsluna eru verkleg
viðfangsefni, sem falla undir teiknikennsluna, og eru æfingar valdar
í samráði við kennara i hurðarþolsfræði.
Fjöldi kennslustunda um 75.
Rúmmyndafrœði. Kennd eru undirstöðuatriði rúmmyndafræðinnar:
Einföld og tvöföld rétthyrnd prójektíón, aksónómetrí og punktprójek-
tíón. Áherzla er lögð á einfaldar úrlausnir, er hafa hagnýta þýðingu
við teiknivinnu, og atriði þessi æfð í teiknikennslunni. Skal geóme-
triskum teikningum ætlaður um þriðjungur æfingaverkefna, sem gera
skal í samráði við kennarann i rúmmyndafræði.
Fjöldi kennslustunda um 200.
Eðlisfræði. Kennd eru grundvallaratriði eðlisfræðinnar: tilrauna-
fræði, hreyfingafræði, ljósfræði, hljóðfræði, varmafræði, rafmagns-
og segulmagnsfræði.
Kennslan skal miða að því að auka skilning nemenda á tengslum
hinna rökrænu námsgreina við hagnýt verkefni. Skýringartilraunir
skal gera við kennsluna eftir því, sem við verður komið. Enn fremur
skal námsefnið æft og skýrt með úrlausnum dæma.
Þegar ástæður leyfa, skal liaft æfinganámskeið i sambandi við
kennsluna. í æfingum þessum skal vinna að verkefnum úr hinum
ýmsu greinum eðlisfræðinnar og leggja sérstaka áherzlu á notkun al-
gengustu mælitækja. Gera skal tólf æfingar, sem að jafnaði taka 3
tíma hver.
Fjöldi kennslustunda um 300.
Fjöldi æfingastunda um 40.
Efnafræði. Kennd er sundurgreining á blöndum og munur á efna-
fræði- og eðlisfræðilegum prócessum. Að öðru leyti fjallar kennslan
um atóm- og mólekúlkenninguna, períódiska kerfið, ástandsbreyt-
ingar, hómógenar hlöndur, osmótisku lögmálin og afbrigði frá þeim,
kollóída, reaktíónshraða og efnafræðilegt jafnvægi. Skýra skal hin
almennu lögmál með dæmum, og sérstaklega þeim, er hafa tekniska
þýðingu. Sýningatilraunir skal gera til skýringar eftir því sem við
verður komið.
í sambandi við kennsluna er lialdið æfinganámskeið í efnagrein-