Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1945, Blaðsíða 90
88
stúdentarnir farnir að flytjast þangað inn. Ríkir meðal þeirra almenn
ánægja yfir þessum málalokum, og hefur nú að verulegu leyti verið
bætt úr hinum óþolandi húsnæðisvandræðum stúdenta.
íþróttir. Stúdentaráðið beitti sér, eins og að undanförnu, fyrir
tveim sundmótum. Tóku flestir framhaldsskólar bæjarins þátt i
þeim. Á fyrra mótinu var keppt í bringusundi, en á því siðara í
skriðsundi. Iðnskólinn bar sigur úr býtum á báðum mótunum, en
árangur varð þó með bezta móti hjá liáskólastúdentum. Þá tóku
stúdentar þátt í skíðamóti Reykjavíkur. Sömuleiðis í handknattleiks-
keppni, sem Samband bindindisfélaga í skólum gekkst fyrir, að haldin
yrði. Sigraði háskólinn í þeirri keppni. í haust gengust stúdentar
loks fyrir keppni i frjálsum íþróttum milli skóla bæjarins og gengu
þar með sigur af hólmi.
Áskoranir á stjórnarráðiff. Síðast liðinn vetur var samþykkt i
stúdentaráði tillaga þess efnis, að skorað yrði á ríkisstjórnina að
láta fara fram gagngerða rannsókn á því, í hvaða greinum atvinnulífs-
ins helzt væri þörf sérfræðinga. Ástæðan til þess, að tillaga þessi
kom fram, var sú, að það er almennt álit manna, að stúdentar séu
að loknu prófi við menntaskólana næsta fáfróðir um, hvar starfs-
krafta þeirra muni helzt þörf í þjóðfélaginu. Afleiðingin er einatt
sú, að oft er það hending ein, sem ræður, hvaða námsgrein stúdentar
leggja fyrir sig. Stúdentaráðið taldi tíma til kominn að gera tilraun
til að ráða bót á þessu ástandi og sendi þvi ríkisstjórninni áður-
greinda áskorun. Er nú svo komið, að menntamálaráðherra hefur
skipað nefnd til að rannsaka þetta mál. Þá samþykkti ráðið enn
fremur á s. 1. vori að skora á dómsmálaráðuneytið að sjá til þess,
að lögfræðistúdentar, sem skyldaðir eru til að starfa í tvo mánuði
af námstíma sínum í þjónustu lögfræðinga, fengju greiðan aðgang
að skrifstofum allra fógeta og jafnframt greitt kaup fyrir vinnu sína.
Ástæðan fyrir þessari tillögu var sú, að stúdentar þurfa flestir að
nota sumarmánuðina til að Ijúka þessum ,,kursus“, ef þeir þá ekki
kjósa að gera það að vetrarlagi á kostnað námsins, en, eins og kunn-
ugt er, eru sumarmánuðirnir einmitt sá tími, sem flestir stúdentar
nota til að afla sér einhverra tekna, og verður því að teljast ósann-
gjarnt að skylda þá til að leysa af hendi þessi störf fyrir sáralitla og
i flestum tilfellum enga borgun. Dómsmálaráðuneytið hefur enn ekki
svarað málaleitan þessari, enda þótt upplýsingar liggi fyrir um, að
hún barst hinu háa ráðuneyti í hendur.
Álijktun var gerð um það síðara hluta síðast liðins vetrar, að þegar
upp kæmu deilur, er snertu stúdenta eina, bæri að halda þeim innan
veggja skólans. Tilefnið var það, að nokkrar greinar eftir stúdenta
höfðu birzt í hinum ýmsu dagblöðum bæjarins i sambandi við deilur