Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1945, Page 13
11
3. Prófessorsembætti í beimspeki. Próf. dr. Ágúst II. Bjarna-
son lét af embætti sökum aldurs 1. sept. 1945. Um emb-
ættið sótti dr. phil. Símon Jóh. Ágústsson. 1 nefnd sam-
kvæmt 9. gr. háskólareglugerðarinnar voru skipaðir:
Próf. dr. Ágúst H. Bjarnason, formaður (af hálfu heim-
spekisdeildar), próf. dr. Sigurður Nordal (af hálfu há-
skólaráðs) og Ármann Halldórsson skólastjóri (tilnefnd-
ur af menntamálaráðherra). Yar dr. Símon Jóh. Ágústs-
son skipaður prófessor i lieimspeki frá 1. sept. 1945.
4. Prófessorsembætti í íslenzkum fræðum. Hinn 3. marz
1945 var próf. dr. Sigurði Nordal veitt lausn frá pró-
fessorsembætti í íslenzkri hókmenntasögu frá 1. marz
að telja. Sama dag var hann skipaður frá 1. marz pró-
fessor í íslenzkum fræðum við heimspekisdeildina, sam-
kvæmt lögum nr. 32, 12. febr. 1945.
5. Prófessorsembætti í íslenzkri bókmenntasögu. Samkv.
tillögu heimspekisdeildar var dr. Einar Öl. Sveinsson
liáskólabókavörður 3. marz 1945 settur prófessor í ís-
lenzkri hókmenntasögu frá 1. sama mán. í nefnd sam-
kvæmt 9. gr. háskólareglugerðarinnar voru skipaðir:
Próf. dr. Sigurður Nordal, formaður (af hálfu lieim-
spekisdeildar), próf. dr. Alexander Jóhannesson (nefnd-
ur af háskólaráði) og dr. Bjarni Aðalbjarnarson (til-
nefndur af menntamálaráðherra). Hinn 7. maí 1945 var
dr. Einar Ól. Sveinsson skipaður í embættið frá 1. sama
mánaðar.
6. Dósentsembætti í bókmenntasögu. Samkvæmt nýsettum
lögum var dr. Steingrimur J. Þorsteinsson hinn 12. jan.
1945 settur frá 1. jan. til þess að g'egna dósentsembætti
i Uókmenntasögu við heimspekisdeild. I nefud samkv.
9. gr. háskólareglugerðarinnar voru skipaðir: Próf. dr.
Sigurður Nordal, formaður (tilnefndur af heimspekis-
deild), dr. Einar Öl. Sveinsson (af hálfu háskólaráðs)
og dr. Björn K. Þórólfsson (af hálfu menntamálaráð-
herra). Hinn 16. apríl 1945 var dr. Steingrímur J. Þor-
steinsson skipaður dósent frá 1. maí að telja.