Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1945, Page 46
44
Skriflega prófið fór fram dag'ana 9. og 11. janúar.
Verkefni voru þessi:
I. í lyflæknisfræði: Lýsið aðalviðbótarsjúkdómum (com-
plicationes) við lungnabólgu. Hvernig má bera kennsl á
þá?
II. í handlæknisfræði: Lýsið connnotio, compressio og con-
tusio cerebri eftir höfuðhögg, einkennum þeirra, grein-
ingu og meðferð.
I lok siðara misseris luku 4 kandídatar þriðja liluta emb-
ættisprófs.
Skriflega prófið fór fram dagana 2. og 4. mai.
Verkefni i skriflega prófinu voru þessi:
I. I lyflæknisfræði: Mænuvökvi, aðferðir að ná honum, aðal-
efni hans, sjúklegar breytingar. Hver not má bafa af þeim
til aðgreiningar á sjúkdómum?
II. í handlæknisfræði: Cholelithiasis, einkenni, greining og
meðferð.
Prófdómendur voru læknarnir dr. med. Halldór Ilansen,
Matthías Einarsson og Sigurður Sigurðsson.
Laga- og hagfræðisdeildin.
I. Síðari hluti embættisprófs í lögfræði.
I lok fyrra misseris lauk 1 kandidat síðara liluta emb-
ættisprófs í lögfræði, en 9 i lok síðara misseris.
Verkefni í skriflegu prófi í janúar voru þessi:
I. I kröfu- og hlutarétti: Hvaða mótbárum gegn kröfu
samkvæmt viðskiptabréfi glatar skuldarinn, er brcfið
er framselt grandlausum þriðja manni?
II. I refsirétti: Skýrið 251. gr. almennra hegningarlaga nr.
19 frá 1940.
III. I réttarfari: Hverjar eru verkanir fjárnáms?
IV. Raunhæft verkefni: