Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1945, Blaðsíða 49
47
þörfum, þó þannig að skuld A. mátti atdrei nema meiru en kr. 20000.00.
Samningar voru enn fremur þeir, aS A. skyldj senda B. í umboðssölu
æðardún og skinn, sem hann hefði á boðstólum, en andvirðið, er sala
hafði farið fram, fært A. til tekna á viðskiptareikningi hans hjá B.,
að frádregnum 10% sölulaunum til B., enda har og B. að greiða allan
kostnað eftir að vörurnar kæmu i iand hér í Reykjavík, eða í skip á
ísafirði, ef B. ráðstafaði þeim annað en hingað.
Loks var svo ákveðið, að hvenær sem A. væri skuldlaus við B.,
skyldi andvirði afurða frá honum lagt inn á sparisjóðsreikning í
Landsbankanum hér. Bókin var á nafni A., en meðan hún væri i vörzl-
um B. skyldi innstæðan vera til tryggingar skuldum A. við B. eins og
þær væru á hverjum tíma. Hafði B. geymt bókina lengi, og var hún
enn í vörzlUm hans, er þau atvik gerðust, er siðar segir. Um uppsögn
þessa samnings var ekkert samið.
Þann 12. september 1942 barst B. svo hljóðandi símskeyti frá A.:
„Sendið 25 poka rúgmjöl og 80 poka haframjöl næstu ferð Esju.“
B. sendi vörurnar þegar þann 18. sept. og skuldaði A. jafnframt
fyrir andvirði þeirra, eins og síðar segir.
Er A. fékk skilríki um vörurnar, varð hann þess visari, að hann
hafði fengið GO pokum meira af haframjöli heldur en hann hafði
ætlazt til, og kom síðar í ljós, að í meðförum símans hafði talan 20
hreytzt í 80.
A. sendi þá B. svo hljóðandi skeyti: „Tek ekki við 60 pokum hafra-
mjöls sendum umfram pöntun, liggja afgreiðslu hér yðar ábyrgð.“
Liðu nú nokkrir dagar og lét B. ekkert til sín heyra. En 26. sept.
varð A. þess vísari í símtali við sameiginlegan kunningja þeirra B.,
að B. væri mjög illa staddur fjárhagslega og vafasamt væri, hvort
hann „hefði það af“. Daginn eftir tók síðan A. umrædda 60 poka á
afgreiðslu skipaútgerðarinnar, flutti ])á i vörugeymslu sína og var
húinn að selja þá alla, er þau atvik gerðust, er síðar segir.
í byrjun september stóðu reikningar þeirra A. og B. þannig hjá B.,
að A. átti inni á fyrrgreindri sparisjóðshók sinni kr. 2000.00 og á við-
skiptareikningi kr. 6244.00, enda hafði B. látið hjá líða að leggja þá
upphæð inn á bókina. Andvirði þeirra vara, er fyrr getur, nam kr.
5000.00, þar af kr. 2000.00 andvirði 25 -f 20 poka, er A. hafði pantað,
og kr. 3000.00 þeirra 60 poka, sem umfram voru. Innieign A. á reikn-
ingnum nam þannig aðeins kr. 1200.00, er andvirði kornvaranna
hafði verið sltuldað á reikninginn.
í júnímánuði hafði A. sent B. afurðir, er B. nokkrum dögum síðar
— 12. júní -—■ setti C. heildsala að handveði fyrir vöruvíxli að upp-
hæð kr. 1000.00. Féll sá víxill 12. desember 1942 og var ekki inn-
leystur af B.